Back to search

Bifröst University

Viðskiptalíkan DR

Abstract

dc:description.abstract

Upplýsingaöflun neytandans um vörur og þjónustu hefst gjarnan með leit á netinu. Þær upplýsingar sem hann finnur þar geta haft mikil áhrif á ákvörðun hans um það hvert hann leitar með viðskipti sín. Sýnileiki og auðvelt aðgengi að upplýsingum á vefmiðlum verða þannig æ nauðsynlegri og spila samfélagsmiðlar þar oft á tíðum stórt hlutverk. Fyrirtækin sjálf eru þó ekki alltaf í stakk búin til að viðhalda eigin upplýsinga og fréttaveitum né hafa nægilega markaðslega kunnáttu til að ná á sem skilvirkastan máta til markhóps síns. Hér kemur hugmyndin að stofnun DR, en þar er um að ræða fyrirtæki sem býður uppá heildarlausn eða allt frá vefhýsingu að hönnun markaðsherferða. Tilgangur þessa verkefnis er að skilgreina og leggja mat á viðskiptahugmyndina og svara þannig rannsóknarspurningunni „Hver er hugsanleg hagkvæmni af stofnun og rekstri fyrirtækisins DR“. Framkvæmd var ítarleg greining á ytri og innra umhverfi fyrirtækisins þar sem stuðst var við greiningaaðferðir á borð við PEST, Fimm krafta líkan Porters og SVÓT. Einnig var viðskiptahugmyndin sett upp í viðskiptalíkan þeirra Alexander Osterwalder og Yves Pigneur (e. Buisness model canvas) til frekari glöggvunar á þeim atriðum sem hafa ber í huga við stofnun fyrirtækis. Helstu niðurstöður verkefnisins eru þær að til þess að fyrirtækið DR geti talist rekstrarlega hagkvæmt, er nauðsynlegt að bjóða upp á breitt þjónustuframboð í kringum og til viðbótar við gerð heimasíðna og fyrirtækjavefja. Má því segja að markaðsleg tenging og vinna við viðbótar vöruframboð séu undirstaða hagkvæms reksturs DR.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Donna Kristjana Peters 1977-
Advisor dc:description.advisor
  • Stefán Valgarð Kalmansson 1961-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/34256

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Donna Kristjana Peters 1977-. Viðskiptalíkan DR. 2019. https://hdl.handle.net/1946/34256