Back to search

Bifröst University

Markaðssetning myndlistarmanna

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur ritgerðarinnar var að rannsaka hvað myndlistarmenn gera til að koma sér á framfæri og hugsanleg tengsl milli markaðssetningar annars vegar og velgengni á því sviði hins vegar. Ákveðið var að gera netkönnun meðal myndlistarmanna. Sérstaklega var hugað að hvernig myndlistarmennirnir bera sig að við markaðssetningu, hvernig markaðssetningunni væri háttað, hvort hún hafi verið kennd í skóla og hvort þeir sem lærðu hana í skóla standi sig betur en þeir sem hafa þreifað sig áfram. Enn fremur var athugað hvort markaðsetning myndlistarmanna væri mismunandi eftir aldri þeirra, kyni, sjálfsmynd, þ.e.a.s. tiltrú þeirra á eigið ágæti sem myndlistarmanns, myndlistarstefnu, námslandi eða vinnusemi? Í könnuninni voru borin saman ýmis atriði sem viðkemur myndlistarmanninum og athugað hvort það skýri velgengni þeirra. Velgengnispurningar voru fimm því ekkert eitt getur sagt fyrir um velgengni. Einn myndlistarmaður getur haft háar tekjur af list sinni án þess að hafa fengið nokkra styrki og öfugt. Þessar spurningar eða breytur voru: myndlistartekjur, fjöldi starfslauna, styrkir og viðurkenningar, tíðni einkasýninga og sýningamöguleikar. Aðallega var stuðst við netkönnun sem send var félagsmönnum Sambands íslenskra myndlistarmanna í nóvember 2006. Alls svöruðu 156 listamenn. 50 Meirihluti myndlistarmannanna sem tóku þátt í þessari könnun höfðu aldrei hlotið starfslaun myndlistarmanna eða 65,1%. Það kom sérstaklega á óvart hve margir höfðu ekki sótt um starfslaunin eða 44 einstaklingar (28,6%) af 152 sem svöruðu spurningunni. Eru þessir einstaklingar búnir að gefast upp á starfslaununum fyrirfram? Fleiri en smærri atriði sýndu líka getu-, kunnáttu- eða áhugaleysi til að koma sér áfram. Sumar spurningarnar áttu að sanna vissar tilgátur – eins og t.d. hvernig gögn væru sett fram í samkeppnisumsóknum eða styrkumsókn vegna eins ákveðins verks. Í stað þess að sýna rækilega hvaða frágangur væri bestur varð niðurstaðan sú að þeir sem svöruðu einhverri staðhæfingu úr þessari spurningu – fyrir utan „Ég hef ekki tekið þátt í svona samkeppni/sótt um svona styrki” – stóðu svo miklu betur að vígi en þeir sem ekki höfðu sótt um svona styrki eða tekið þátt í samkeppnum. Eiginlega kom í ljós að velgengni listamannsins byggðist helst á því að vera virkur á mörgum sviðum og sækja um sem mest af styrkjum og öðru sem í boði er fyrir myndlistarmennina.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Inga Rósa Loftsdóttir 1962-
Advisor dc:description.advisor
  • Helga Kristjánsdóttir 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/34431

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Inga Rósa Loftsdóttir 1962-. Markaðssetning myndlistarmanna. 2019. https://hdl.handle.net/1946/34431