Back to search

Bifröst University

Meðhöndla fjölmiðlar flugfélögin á sama hátt?

Abstract

dc:description.abstract

Á síðasta áratug hefur mikilvægi ferðaþjónustunnar á Íslandi margfaldast, og með því reiða fleiri atvinnurekendur sig á innstreymi ferðamanna til landsins. Um áratugaskeið var einungis eitt ríkjandi flugfélag á millilandamarkaði, Icelandair. Í gegnum tíðina hafa mörg flugfélög verið stofnuð á Íslandi til höfuðs Icelandair en fáir haft erindi sem erfiði. Árið 2012 hóf sig til flugs nýtt flugfélag í eigu frumkvöðulsins Skúla Mogensen, Wow Air, en Skúli kom efnaður heim eftir vel heppnaðan fjárfestingaferil í Kanada og ákvað að setja sitt mark á flugbransann með því að nýta sér nokkuð nýtilkomnar vinsældir Íslands sem ferðamannastaðar. Skúli stofnaði félagið 2011 og hóf starfsemi 2012. Með tilkomu WOW Air og hröðum vexti félagsins árin á eftir varð í fyrsta sinn um langa hríð til stór og öflugur keppinautur fyrir Icelandair í samkeppninni um flug til og frá landinu. Eins og oft vill verða þegar miklar breytingar verða á markaði er umfjöllun um persónur og leikendur mikil og efnistökin fara oft vítt og breitt. Í rannsókn þessari er umfjöllun um félögin skoðuð með hliðsjón af uppgangi WOW air og endalokum þess og efnistök umfjöllunar um félögin borin saman með það að markmiði að greina hvort og þá hvernig fjölmiðlar fjalla um félögin á ólíkan hátt. Hvort að félögin njóti þar sannmælis og hvort að umfjöllun fjölmiðlanna geti talist sanngjörn gagnvart báðum félögum. Einnig er rætt við viðskiptaritstjóra stórs fjölmiðils sem hefur skrifað mikið um flugfélögin og leitast við að fá svör við því hvað einkennir umfjöllun og upplýsingaöflun fjölmiðla þegar kemur að flugfélögunum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Torfi Geir Símonarson 1989-
Advisor dc:description.advisor
  • Ingvar Örn Ingvarsson 1972-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/35026

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Torfi Geir Símonarson 1989-. Meðhöndla fjölmiðlar flugfélögin á sama hátt?. 2020. https://hdl.handle.net/1946/35026