Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar var að skoða starfsánægju í fyrirtæki og kanna hverjir eru helstu áhrifaþættir starfsánægjunnar þar væru og hvernig upplifun stjórnenda er á er á henni. Fyrir valinu varð fyrirtækið Límtré Vírnet í Borgarnesi, en höfundur hafði áður unnið þar og fannst áhugavert að kanna þessi ákveðnu þætti þar. Rannsóknarspurningin var eftirfarandi: „Hver er starfsánægja starfsmanna Límtré Vírnets í Borgarnesi“ og til hliðsjónar voru eftirfarandi undirspurningar : „hver er upplifun stjórnenda á starfsánægju starfsmanna Límtré Vírnets í Borgarnesi“ og „hverjir eru helstu áhrifaþættir starfsánægju starfsmanna Límtré Vírnets í Borgarnesi“ Notast var við bæði eigindleg og megindleg gögn sem var aflað, gögnin voru síðan greind hvort í sínu lagi en tekin saman og tengd eftir því sem við átti. Í megindlega hluta rannsóknarinnar var notast við spurningakönnun sem mannauðsstjórinn sendi á alla starfsmenn innan fyrirtækisins. Eigindlegi hlut rannsóknarinnar var notast við hálf opin viðtöl sem tekin voru við tvo stjórnendur Límtré Vírnets. Niðurstöðurnar sýndu að almennt er starfsánægja mikil í Límtré Vírnet. Upplifun stjórnenda á starfsánægju starfsmanna virðist vera sambærileg við það sem þeir upplifa sjálfir og helstu áhrifaþættir starfsánægjunnar eru hrós og hvatning frá yfirmanni, góð vinnuaðstaða, góð samskipti við yfirmann og möguleiki á að þróast í starfi auk þess að auðvelt er að samræma vinnu og einkalíf.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Arnar Gylfi Jóhannesson 1988-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/35030