Bifröst University
Er marktækur munur á kauphegðun kynslóða X og Z á íslenskum markaði : kauphegðun á farsíma- og skyndibitakaupum
Abstract
dc:description.abstractSú gífurlega þróun og breyting sem átt hefur sér stað í tækni á síðastliðnum árum hefur haft áhrif á markaðsumhverfi og aukið það magn upplýsinga sem að neytendur hafa til að leita sér upplýsinga um vörur eða þjónustu. Nú er að koma upp kynslóð sem þekkir heiminn ekki öðruvísi en með þessari tækni til staðar og er kölluð Z-kynslóðin. Rannsóknir hafa sýnt að Z kynslóðin er gjörólík kynslóðinni á undan hvað varðar gildi þeirra og kauphegðun og því ekki seinna vænna fyrir fyrirtæki en að fara að átta sig á hverjar eru þarfir og óskir þessara framtíðarkaupenda. Ekki eingöngu vegna þess að þessi hópur er stór og eyðir miklum peningum, heldur einnig því að kauphegðun þessarar kynslóðar hefur mikil áhrif á aðrar kynslóðir (Fromm og Read, 2018). Viðfangsefni þessa rannsóknar var að kanna hvort að marktækur munur væri á milli kauphegðunar kynslóða X og Z á íslenskum markaði við kauphegðun þeirra á farsíma- og skyndibitakaupum. Z-kynslóðin er skilgreind sem fólk fætt á árunum 1995 – 2010 og Xkynslóðin er fólk fætt á árunum 1965 – 1979 (Fromm og Read, 2018) (Kasasa, 2019). Mældur marktækur munur á milli kynslóðanna mældist jákvæður með kí- kvaðrat og t- prófi í 38 atriðum af þeim 56 sem prófuð voru eða í 67% tilvika. Niðurstaðan er því sú að það er marktækur munur á kauphegðun kynslóða X og Z á íslenskum markaði, þegar kemur að skyndibita- og farsímakaupum
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Tinna Gunnlaugsdóttir 1985-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Ragnar Már Vilhjálmsson 1969-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/35039