Bifröst University
Réttarstaða aðstoðarmanna héraðsdómara og vald við úrlausn og meðferð dómsmála
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um réttarstöðu aðstoðarmanna héraðsdómara og vald við úrlausn og meðferð dómsmála, en það viðfangsefni hefur lítið verið rannsakað á Íslandi Ritgerðin skiptist í fjóra hluta. Í fyrsta hluta er fjallað um íslenska stjórnskipan og dómsvaldið. Þar er einnig fjallað um áhrif Mannréttindasáttmála Evrópu og dóma Mannréttindadómstóls Evrópu á íslenskan rétt og hvernig það tengist viðfangsefninu. Í öðrum hluta er rakin sú réttarþróun sem hefur átt sér stað varðandi dómarafulltrúa og aðstoðarmenn dómara, allt frá byrjun 20. aldar til ársins 2019. Í þriðja hluta rigerðarinnar er samanburður á fyrirkomulagi um aðstoðarmenn dómara í Danmörku, Noregi og Hollandi. Í fjórða hluta rigerðarinnar eru reifaðar skýrslur frá European Union of Rechtspfleger og Consultative Council of European Judges, ásamt skrifum erlendra fræðimanna. Helstu niðurstöður eru þær að höfundur telur að núverandi fyrirkomulag um aðstoðarmenn dómara uppfylli lágmarkskröfur stjórnarskrárinnar og Mannréttindasáttmála Evrópu, en þrátt fyrir það verði að halda áfram að þróa umgjör aðstoðarmanna dómara til að geta mætt breyttum aðstæðum og hugsanlega auknum kröfum frá Mannréttindadómstól Evrópu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Árdís Rut Hlífardóttir 1989-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Einar Karl Hallvarðsson 1966-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/35043