Back to search

Bifröst University

Stafræn vörumerkjaupplifun : lykilþættir árangurs í stafrænni upplifun og ferðalagi notenda

Abstract

dc:description.abstract

Kaupákvörðunarferli neytenda hefur tekið stakkaskiptum með alnánd gagnagnóttar, kóðunar og hönnunar á stafrænum grundvelli. Framfarir hafa leitt til þess að kaupákvörðunarferlið hefur færst frá hugmyndafræði trektarinnar yfir í ákvörðunarferðalag neytenda. Ferðalagið inniheldur hringrás endurgjafar þar sem neytendur halda áfram mati á vöru eða þjónustu eftir að kaupum er lokið sem veldur frekara álagi á það að vörur standi undir væntingum og að vörumerki tryggi stöðugt yfirburðarupplifun viðskiptavina. Meginviðfangsefni rannsóknar þessarar eru hugtökin stafræn vörumerkjaupplifun, viðskiptavinamiðuð gagnavinnsla og stafrænt ferðalag. Markmiðið var að kanna jákvæð sambönd á milli þessara þriggja þátta og bera saman fræðilegar niðurstöður við starfsemi íslenskra vörumerkja. Enn fremur er umbreytingu vörumerkja, viðskiptavinamiðaðri vörumerkjauppbyggingu og stafrænu umhverfi gerð ítarleg skil. Framkvæmd var eigindleg rannsókn með fimm tilvikum þar sem níu sérfræðingar svöruðu hálfopnum viðtölum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að öll tilvik stunduðu viðskiptavinamiðaða gagnavinnslu við mótun á stafrænni vörumerkjaupplifun og stafrænu ferðalagi viðskiptavina sinna. Með sífelldum mælingum geta stjórnendur mótað stafrænt ferðalag og gætt að því hvernig viðskiptavinir upplifa snertipunkta við vörumerkið. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiða í ljós að jákvæð vörumerkjaupplifun á stafrænum grundvelli myndast við samspil vitsmunalegs og tilfinningalegs ástands. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að áhrif vitsmunalegs ástands myndast við auðvelda notkun hugbúnaðar og/eða viðmóts, skynjaða stjórn notenda og virkni. Tilfinningalegt ástand framkallast við fagurfræði uppsetningar, skynjaðs virðis og lausnar á vandamáli.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ásgrímur Már Friðriksson 1982-
Advisor dc:description.advisor
  • Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/35044

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásgrímur Már Friðriksson 1982-. Stafræn vörumerkjaupplifun : lykilþættir árangurs í stafrænni upplifun og ferðalagi notenda. 2020. https://hdl.handle.net/1946/35044