Bifröst University
Vörumerkjastjórnun íslenskra örfyrirtækja : leiðarvísir að árangursríkri vörumerkjastjórnun
Abstract
dc:description.abstractSterkt vörumerki þarfnast aðhalds, skýrar sýnar, vinnu og þolinmæði. Vörumerkjastjórnun er það stefnumótandi ferli sem felur í sér hönnun og innleiðingu markaðsaðgerða sem og aðferðum til vörumerkjauppbyggingar, mælinga og stjórnunar á vörumerkjavirði (e. brand equity). Í fræðinni er mikið magn af gögnum er varða vörumerkjastjórnun hjá stærri fyrirtækjum en afar lítið er að finna sem viðkemur örfyrirtækjum. Rannsóknin er eigindleg (e. qualitative) könnunarrannsókn með þversniðsrannsóknarsniði. Gögnum var aflað í gegnum 10 hálf-opin viðtöl við stjórnendur íslenskra örfyrirtækja þar sem rannsakandi studdist við viðtalsramma og leitaðist eftir svörum sem varðar vörumerkjastjórnun viðkomandi fyrirtækja. Rannsókninni er ætlað að gefa greinargóða mynd á stöðu vörumerkjastjórnunar hjá íslenskum örfyrirtækjum og skoða skilning stjórnenda á helstu markaðsaðgerðum sem beita þarf við vörumerkjastjórnun, ásamt því hvort þeim sé raunverulega beitt. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að vörumerkjastjórnun í fræðilegum skilningi er hverfandi lítil meðal íslenskra örfyrirtækja. Fræðilegur skilningur stjórnenda á þáttum sem tengjast vörumerkjastjórnun er afar lítill. Hins vegar virðast þeir þó meðvitaðir um að það séu margir þættir sem snúa að vörumerkjastjórnunarferlinu sem og markaðssetningu almennt sem þeir þyrftu að sinna en gera þó ekki. Ástæðan fyrir því virðist vera takmarkanir þess að reka lítið fyrirtæki en þeir þættir sem helst voru nefndir sem ráðandi þættir í því hvernig viðmælendur gætu sinnt vörumerkjum sínum var tímaleysi, skortur á fjármagni og skortur á sérfræðiþekkingu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sif Baldursdóttir 1987-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/35048