Bifröst University
Kostnaður við meðferð krabbameins í ristli og endaþarmi : réttlætir sá kostnaður skimun
Abstract
dc:description.abstractBakgrunnur: Nýgengi krabbameins í ristli og endaþarmi hefur aukist umtalsvert á Íslandi á undanförnum áratugum. Um alvarlegan sjúkdóm er að ræða en búast má við að tæplega helmingur þeirra sem greinast deyi úr sjúkdómnum. Miklar framfarir hafa orðið í meðferð, en þeim hefur jafnframt fylgt mikill kostnaðarauki. Með skimun er unnt að greina sjúkdóminn á fyrri stigum og meðhöndla hann með minni kostnaði. Skimun hefur ekki hafist hér á landi enn, sem væntanlega má rekja til þess kostnaðar sem henni fylgir. Í þessu verkefni er reynt að leggja mat á kostnað vegna meðferðar á krabbameini í ristli og endaþarmi á Íslandi. Jafnframt er bent á hvernig lækka mætti þennan kostnað með skimun. Aðferðir: Samkvæmt erlendum rannsóknum má áætla að nær öll meðferð við krabbameini í ristli og endaþarmi fari fram á 5 ára tímabili frá greiningu þó flestir sjúklingar fái meðferð í mun styttri tíma. Því voru fengnar upplýsingar frá Krabbameinsskrá Íslands um þá einstaklinga sem greinst höfðu með krabbamein í ristli og endaþarmi á árunum 2004–2008 og reyndust þeir vera 685 talsins. Kostnaður vegna meðferðar þeirra árið 2008 á Landspítalanum var skoðaður. Kostnaðartölur voru fengnar frá hag- og upplýsingasviði, Sjúkrahúsapótekinu og nokkrum öðrum einingum spítalans. Þar sem hluti meðferðar sjúklinga fer fram á öðrum sjúkrastofnunum en á Landspítalanum var leitast við að áætla hver sá kostnaður gæti verið. Ekki var lagt mat á kostnað sjúklings vegna sjúkdómsins, vinnutaps, né annarra óbeinna þátta.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristín Skúladóttir 1966-
- Advisors dc:description.advisor
-
- Ásta Dís Óladóttir 1972-
- Friðbjörn Sigurðsson 1959-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/3640