Back to search

Bifröst University

Rannsóknarreglan og ákvörðun um veitingu opinbers starfs

Abstract

dc:description.abstract

Fari stjórnvald með vald til að veita opinbert starf hvílir á því sú skylda að fyllilega upplýsa viðkomandi mál áður en ákvörðun er tekin í því. Felst í því að sjá til þess að nægilega sé upplýst hvaða umsækjandi, sem uppfyllir almenn hæfisskilyrði, teljist hæfastur með hliðsjón af þeim skilyrðum sem lögð eru til grundvallar. Af þessu leiðir að rík rannsóknarskylda hvílir á þeim sem veitir starfið en rannsóknarregla stjórnsýsluréttarins er ein sú mikilvægasta þeirra málsmeðferðarreglna sem ætlað er að tryggja að stjórnvaldsákvarðanir séu bæði löglegar og réttar. Í lokaverkefni þessu er gerð grein fyrir beitingu rannsóknarreglunnar við meðferð máls um veitingu opinbers starfs. Fyrst er fjallað almennt um rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins og því næst um almennar réttarreglur sem eiga við um veitingu opinberra starfa. Þá er skoðað hver réttaráhrif stjórnvaldsákvörðunar eru þegar veitingarvaldshafi sinnir ekki rannsóknarskyldu sinni. Álit umboðsmanns Alþingis, úrskurðir kærunefndar jafnréttismála og dómar Hæstaréttar eru reifaðir til skýringar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristófer Kristjánsson 1990-
Advisor dc:description.advisor
  • Ari Karlsson 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/36454

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristófer Kristjánsson 1990-. Rannsóknarreglan og ákvörðun um veitingu opinbers starfs. 2020. https://hdl.handle.net/1946/36454