Bifröst University
Áhrifaþættir og viðhorf íslenskra kvenna til stafrænna matvörukaupa
Abstract
dc:description.abstractViðfangsefni þessarar rannsóknar eru stafrænar matvöruverslanir, neytendahegðun og viðhorf íslenskra kvenna til matvörukaupa á netinu. Markmiðið er að varpa ljósi á viðhorf og upplifun íslenskra kvenna til stafrænna matvöruverslana þar sem leitast verður við að svara tveimur rannsóknarspurningum sem settar voru fram til að leggja mat á hvaða þættir það eru sem hafa helst áhrif á að íslenskar konur kaupi matvöru í netverslun eða ekki. Jafnframt er þróun og einkennum stafrænna matvöruverslana á Íslandi gerð ítarleg skil. Rannsóknin er byggð á blandaðri aðferðafræði eigindlegra og megindlegra rannsóknaraðferða þar sem greindar eru niðurstöður viðtala við sex íslenskar konur með reynslu af matvörukaupum í netverslun sem og niðurstöður spurningakönnunar sem lögð var fyrir íslenskar konur á matvörumarkaði. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að íslenskar konur eru almennt séð jákvæðar í garð stafrænna matvöruverslana og telja það líklegt að slík kaup verði gerð í auknum mæli í framtíðinni. Þá sýna niðurstöðurnar jafnframt að íslenskar konur með reynslu af matvörukaupum á netinu leitast eftir auknum þægindum, tímasparnaði og heimsendingu á matvöru þegar þær stunda viðskipti við stafrænar matvöruverslanir. Hins vegar kom í ljós að meira en helmingur þeirra sem hafa keypt matvörur í netverslun eru ekki reglulegir viðskiptavinir stafrænna matvöruverslana. Ástæðu þess mætti rekja til þeirrar niðurstöðu að íslenskum konum finnst yfirleitt auðveldara að fara í hefðbundna matvöruverslun sem og að þeim finnst ákveðin áhætta felast í því að kaupa ferskvörur í gegnum netið. Þessir tveir þættir eru ráðandi þegar ástæður þess af hverju íslenskar konur kaupa ekki matvöru í netverslun voru greindar. Þá sýna niðurstöður rannsóknarinnar einnig að íslenskar konur byrja að versla matvöru í gegnum netverslanir þegar óvæntir ytri þættir koma í veg fyrir að hægt sé að versla í hefðbundinni matvöruverslun. Þetta fékkst staðfest í þeim óvæntu aðstæðum sem áttu sér stað í samfélaginu er þessi rannsókn fór fram, en eftirspurn eftir matvöru í netverslunum á Íslandi margfaldaðist í kjölfar Covid-19 á vormánuðum 2020.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Fanney Skúladóttir 1989-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/36474