Back to search

Bifröst University

Gagn og gaman : verkfærahyggja í menningarstefnu

Abstract

dc:description.abstract

Hugmyndin um verkfærahyggju innan menningarstefnu gengur út á að list hafi ákveðin áhrif sem megi nota til að gagnast samfélaginu, hvort heldur siðferðileg, efnahagsleg eða pólitísk. Þar eð menningarstefna er hluti af pólitísku ferli getur hún eingöngu skilgreint list út frá þessari gagnsemi. Á hinn bóginn eru einnig sterkar hugmyndir um sjálfstæði listar sem mæla gegn opinberum afskiptum bæði á pólitískum og fagurfræðilegum grundvelli og skapa því togstreitu innan menningarstefnu um hvernig styrkja megi list án þess að skipta sér af henni. Þessar hugmyndir um sjálfstæði listar liggja einnig til grundvallar þeirri aðgreiningu milli há- og láglistar sem gerir menningarstefnu elítíska. Saga hugmynda um neikvæð áhrif, jákvæð áhrif og sjálfstæði listar er hér rakin, sett í samhengi við greiningu Geir Vestheim á verkfærahyggju í menningarstefnu og borin upp við íslenska menningarstefnu. Til mótvægis er greint frá annars konar skilgreiningu á verkfærahyggju í samhengi við list samkvæmt kenningum John Dewey. Þá er skýrt frá gagnrýni Richard Shusterman á forsendurnar fyrir skilgreiningunni á list og gagnsemi hennar og afleiðingarnar sem sá skilningur hefur haft. Niðurstaða rannsóknarinnar er að ástæðu árekstrana innan menningarstefnu milli viðhorfa okkar til listar og þarfarinnar á að sýna fram á gagnsemi og árangur megi hugsanlega rekja til hvernig þessar forsendur hafa verið skilgreindar. Það er ekki augljóst hvernig hægt væri að innleiða breytta skilgreiningu á list án þess að gjörbreyta listastofnunum okkar, en skilgreining gagnhyggjunar á list sem verkfæri sem stöðugt þarfnast endurnýjunar er engu að síður mikilvægt mótvægi við skilgreiningarnar sem hafa fest sig í sessi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Finnur Bjarnason 1973-
Advisor dc:description.advisor
  • Njörður Sigurjónsson 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/36508

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Finnur Bjarnason 1973-. Gagn og gaman : verkfærahyggja í menningarstefnu. 2020. https://hdl.handle.net/1946/36508