Bifröst University
"Það er þessi armslengd ríkis frá sveitarfélögum í svona málum" : um loftslagsstefnur og stefnumótun í loftslagsmálum hjá íslenskum sveitarfélögum.
Abstract
dc:description.abstractÁ vettvangi alþjóðastjórnmála og einstakra ríkja hafa verið samþykktar ýmsar stefnur og áætlanir til að stemma stigu við loftslagsbreytingum af mannavöldum. Fá sveitarfélög á Íslandi hafa sett fram loftslagsstefnu en með þessari rannsókn er stefnumótun sveitarfélaga í loftslagsmálum skoðuð út frá kenningargrunni stefnumótunarfræða. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á stefnumótun í loftslagsmálum innan sveitarfélaga, hvaða hindranir eru í vegi sveitarfélaga þegar kemur að gerð loftslagsstefnu og tengsl sveitarfélaga við opinbera stefnumótun í málaflokknum skoðuð. Þá var leitað svara við því hvaða drifkraftar þurfa að vera til staðar svo sveitarfélög geti innleitt loftslagsstefnu. Hér er um eigindlega tilviksrannsókn að ræða þar sem fjögur sveitarfélög á Íslandi voru skoðuð. Annars vegar voru notuð fyrirliggjandi gögn þessara sveitarfélaga og hins vegar var framkvæmd viðtalsrannsókn við átta fulltrúa þessara sveitarfélaga. Niðurstöður benda til þess að ábyrgð á stefnumótun og innleiðingu stefnu í loftslagsmálum sveitarfélaga sé á hendi fárra aðila innan hvers sveitarfélags og mannauður og fjármagn séu þeir þættir sem skipta mestu máli í innleiðingarferlinu. Efla þarf tengsl innan stofnana og sviða innan sveitarfélaga og ekki síður við ríkið í gegnum Samband íslenskra sveitarfélaga. Aukin fræðsla, fjármagn og mannauður eru lykilþættir við stefnumótun sveitarfélaga í loftslagsmálum en að sama skapi skipta hugarfar og einstaklingsframtak miklu máli. Niðurstöður rannsóknarinnar byggja á viðhorfum takmarkaðs hóps viðmælenda og því er ekki hægt að setja fram alhæfingar á grunni þeirra niðurstaðna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hrafnhildur Tryggvadóttir 1973-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Auður H. Ingólfsdóttir 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/37629