Bifröst University
Leiðtogastílar í íslenskum líftæknifyrirtækjum : er upplifun sú sama á leiðtogastigi og starfsmannastigi?
Abstract
dc:description.abstractLíftækni er ört vaxandi svið í vísindum þar sem starf og áhrif leiðtoga í líftæknifyrirtækjum getur verið frábrugðin stjórnunarháttum í öðrum starfsgreinum. Rannsóknir á forystu eru algengar í dag en aðeins lítið hlutfall þeirra beinast að forystu í líftæknifyrirtækjum. Talið er að margir leiðtogar vísindateyma séu skipaðir í stöður sínar á grundvelli vísindalegrar sérþekkingar þeirra. Líftækniiðnaðurinn er þekktur sem svið nýsköpunar ásamt því að menntunarstig starfsmanna innan líftækni er hátt, hæst allra greina innan hátækniiðnaðar hérlendis. - Í þessari rannsókn eru leiðtogastílar innan líftæknifyrirtækja hérlendis skoðaðir ásamt upplifun fylgjenda á þeirra leiðtogum og leiðtogastílum. Markmið rannsóknarinnar er því að skoða leiðtogastíla innan líftæknifyrirtækja og athuga hvort upplifun sé sú sama á leiðtogastigi og starfsmannastigi. Notast var við könnunarraðsnið þar sem hálf-opin viðtöl voru tekin við leiðtoga í líftæknifyrirtækjum. Viðtölin voru þemagreind ásamt því að rannsakandi reyndi eftir bestu getu að túlka leiðtogastíla sem fram komu í viðtölunum. Niðurstöður viðtala voru nýttar við gerð spurningakönnunar sem lögð var fyrir fylgjendur leiðtoganna. - Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að blandaðir leiðtogastílar séu ríkjandi innan líftæknifyrirtækja þar sem ómarktækur munur var á upplifun fylgjenda meðal leiðtogastíla. Dreifð forysta og jafningjabragur voru miðlægt umræðuefni gegnum rannsóknina. Almennt upplifa fylgjendur dreifða forystu og yfirmenn sína sanngjarna, létta og hvetjandi og var það í samræmi við áherslur leiðtoganna. Rannsóknin leiddi einnig í ljós að upplifun af einstökum leiðtogum og þeirra leiðtogastílum var ekki sú sama á leiðtogastigi og starfsmannastigi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Olga Ýr Björgvinsdóttir 1993-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Haraldur Daði Ragnarsson 1973-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/37633