Back to search

Bifröst University

Stefna í átt að árangri : eru tengsl á milli stefnumiðaðrar stjórnunar og starfsánægju?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar skýrslu er að rýna í gildi stefnumótunar fyrirtækja og áhrifa hennar á starfsfólk þeirra. Sérstaklega eru skoðuð tengsl á milli virkrar stefnu og starfsánægju sem varpað gæti ljósi á mikilvægi virkrar stefnu í daglegri stjórnun fyrirtækja. Rætt var við þrjá stjórnendur. Niðurstöður gáfu til kynna að stefnumótun skipti miklu máli á hvern hátt þeir nálguðust sín verkefni og stjórnun á sínum vinnustað. Þegar stefnumótun er vel miðlað til undirmanna, þá opnast tenging við markmið fyrirtækisins og af því hlýst aukið sjálfstæði í starfi, sem leiðir af sér aukna skilvirkni og almennt meiri starfsánægju hjá undirmönnum. Rannsóknin byggir á svörum starfsmanna tveggja fyrirtækja, BL ehf. og Artasan ehf. Alls tóku 125 manns þátt í rannsókninni og var svarhlutfall 55,5% hjá þeim er fengu boð um þátttöku. Allar niðurstöður úr greiningunum sýndu jákvæða fylgni milli þátta við starfsánægju og í 72,2% tilfella töldust niðurstöður marktækar (p < 0,05). Niðurstöður sýndu að mesta fylgni við starfsáægju á einstaka þáttum var þegar starfsmenn létu markmið fyrirtækis síns skipta sig máli (r = ,592), að fyrirtækið ynni markvisst með stefnuna (r = ,385) og að stefnan væri að nýtast starfsmönnum við dagleg störf (r = ,318). Þegar horft var til undir- og yfirþema mátti sjá að mesta fylgnin við starfsánægju var við yfirþemað markmið (r = ,460), undirþemað virk stefna (r = ,324) og undirþemað almenn stefna (r = ,263). Af viðtölum við stjórnendur mátti líta svo á að Artasan ehf. væri stefnumiðaðra heldur en BL ehf. þar sem innleiðing nýrrar stefnu hefur verið í framkvæmd frá upphafi ársins. Niðurstöður sýndu fram á að veikt samband væri milli stefnumótandi þátta á starfsánægju hjá BL ehf. (r = ,458) en sterkt samband hjá Artasan ehf. (r = ,730). Af þessum niðurtöðum, má leiða að því líkum að því meira sem starfsmenn tengja við stefnumarkandi þætti í sínu starfsumhverfi, þá aukist líkur á starfsánægju meðal fyrirtækja. Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna fram á að stefnumiðuð stjórnun er líkleg til þess að þau markmið nái fram að ganga. Veikleikar þessarar rannsóknar eru helst þeir að hún var einungis framkvæmd hjá tveimur fyrirtækjum og að ekki er hægt að færa sönnur á að annað fyrirtækið sé stefnumiðaðra heldur en hitt, heldur byggja þær forsendur á útkomu einstakra þátta rannsóknarinnar. Mælt er með að framkvæmdar verði víðtækari rannsóknir sem í framhaldi af þessari rannsókn. Lykilorð: Stefnumiðuð stjórnun, stefnumótun, starfsánægja, stjórnun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Brynjar Elefsen Óskarsson 1979-
Advisor dc:description.advisor
  • Haraldur Daði Ragnarsson 1973-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/37634

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Brynjar Elefsen Óskarsson 1979-. Stefna í átt að árangri : eru tengsl á milli stefnumiðaðrar stjórnunar og starfsánægju?. 2021. https://hdl.handle.net/1946/37634