Back to search

Bifröst University

Áhrif línuívilnunar : eru útgerðir að nýta sér línuívilnun jafn mikið núna og áður fyrr?

Abstract

dc:description.abstract

Fiskveiðar hafa ávallt verið mjög mikilvægar fyrir Íslendinga og íslenskt þjóðarbú, enda verið ein stærsta atvinnugrein landsins í langan tíma. Á síðustu áratugum hafa fiskveiðar þróast hratt og miklar breytingar hafa orðið í sjávarútvegi. Þar hafa krókaveiðar skipað stóran sess og sérstaklega línuveiðar með handbeitta línu en línuveiðar með handbeitta línu hafa farið minnkandi með ári hverju og þar af leiðandi færri smábátar sem nýta sér línuívilnun sem valkost. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvort útgerðir væru að nýta sér línuívilnun í sama mæli í dag og áður fyrr. Notast var við eigindlegar rannsóknir, gagnasöfnun á netinu og rýnt í ársreikninga útgerðar sem nýtir sér línuívilnun sem rannsakandi fékk aðgang að. Tekin voru viðtöl við þrjá aðila sem hafa gert út línubáta og nýtt sér línuívilnun. Einnig var var rætt við bæjarstjóra Bolungarvíkurkaupstaðar til að fá innlegg frá sjónarmiði fulltrúa bæjarins. Notuð voru gögn frá Fiskistofu og Hagstofunni og gamlir ársreikningar voru skoðaðir til að rýna betur í stöðuna hvernig hún er í dag árið 2020 og hvernig hún var áður fyrr. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að útgerðir nýta sér línuívilnun mun minna núna en áður fyrr, og eru helstu ástæður þess að kostnaður í landi hefur hækkað mikið, s.s. launakostnaður og beita. Fiskerí hefur minnkað á handbeitta línu og lengra er að sækja fiskinn en áður og því fara útgerðir í vélbeitningu sem telst mun hagkvæmari í dag, að sögn viðmælenda.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Einar Guðmundsson 1981-
Advisor dc:description.advisor
  • Húni Jóhannesson 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/37669

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Einar Guðmundsson 1981-. Áhrif línuívilnunar : eru útgerðir að nýta sér línuívilnun jafn mikið núna og áður fyrr?. 2021. https://hdl.handle.net/1946/37669