Back to search

Bifröst University

Notkun á netinu krefst árvekni og skynsemi

Abstract

dc:description.abstract

Þessi rannsókn er gerð til þess að svara spurninguni hvort við höfum misst sjónar á friðhelgi og gagnsæi á netinu. Horft er til hugmyndafræði þeirra tölvugarpa sem í árdaga netsins sem töluðu fyrir því að netið væri opið og valdreift og rætt hvort að hvort sú sé orðið raunin í samtímanum. Niðurstöður benda til þess að ekki búið að glata sjónum af friðhelgi og gangsæi á netinu þó víða megi gera betur í að tryggja friðhelgi. Hugmyndarfræði tölvugarpa lifir góðu lífi í samtímanum og þrátt fyrir miklar breytingar á netinu frá þeirra dögum. Fjárhagslegir hagsmunir fyrirtækja sem safna gögnum sem verða til á netinu er nýjung sem ekki var á tímum frumkvöðlanna, en aðgangur að gögnum um notkun og hegðun fólks á netinu hefur skapað eftirlitskapítalisma. Athygli fólks orðin að vöru á netinu. Friðhelgi og gagnsæi hefur öðlast sterkan grunn með innleiðingu GDPR, þar sem rennt er styrkari stoðum undir rétt fólks til friðhelgi og gagnsæis. Þessi þróun bendir til þess að friðhelgi sé enn mikilvæg í hugum fólks og stjórnvöld vilji skerpa á þessum þáttum. Kröfur til fyrirtækja vegna gagnasöfnunar þeirra á netinu eru miklar þar sem krafist er gagnsæi varðandi söfnun og vinnslu gagna. Fyrirtæki þurfi að uppfylla margskonar skilyrði og eru gerð ábyrg fyrir brotum og misnotkun á henni. Þetta leysir þó ekki allan vanda og notendur þurfa líka að sýna árvekni í notkun sinni á netinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Árni Jökull Þorsteinsson 1979-
Advisor dc:description.advisor
  • Sævar Ari Finnbogason 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/37680

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Árni Jökull Þorsteinsson 1979-. Notkun á netinu krefst árvekni og skynsemi. 2021. https://hdl.handle.net/1946/37680