Back to search

Bifröst University

Þarf að bæta lagaumhverfi sem snertir nýjar framkvæmdir í flutnings- og dreifikerfi raforku til samræmis við viðmið og málsmeðferð annarra leyfisveitinga?

Abstract

dc:description.abstract

Góðir innviðir eru undirstaða nútíma samfélags. Aðgangur að rafmagni hefur fengið aukið vægi með ári hverju ef horft er til lífsgæða, tækifæra og öryggis með tilliti til nútíma lifnaðarhátta. Þetta fengum við Íslendingar að reyna á eigin skinni er fárviðri gekk yfir landið í desember 2019 sem olli miklum truflunum á flutnings- og dreifikerfi raforku. Í kjölfarið fór af stað mikil umræða á opinberum vettvangi um afhendingaröryggi á rafmagni þar sem meðal annarra forstjóri Landsnets taldi fyrirtækið vera í vandræðum við að uppfylla lagalega skyldu fyrirtækisins, það er uppbygging flutningskerfis á hagkvæman hátt þegar horft er til öryggis, skilvikni, áreiðanleika á afhendingar, gæði raforku og stefnu stjórnvalda, sbr. raforkulögin. Ástæðuna taldi hann meðal annars vera að ekki væri hægt að komast nógu hratt í framkvæmdir þar sem leiða þurfi saman fjölmörg sjónarmið til að sem mest sátt ríki um framkvæmdir við uppbyggingu raforkuinnviða í landinu. Ráðherra taldi að kerfið væri einfaldlega of flókið í framkvæmd og ekki skilvirkt þar sem illa hefði gengið að afla tilskilinna leyfa fyrir framkvæmdum. Þá voru ráðherra og forsvarsmenn Landsvirkjunar gagnrýndir á sama vettvangi fyrir að varpa ábyrgð ríkisins og stofnana þess á rafmagnsleysinu yfir á landeigendur og umhverfisverndarsinna. Þar af leiðandi þótti höfundi áhugavert að greina það lagaumhverfi sem umleikur leyfisveitingar við uppbyggingu flutnings- og dreifikerfi rafmagns. Höfundur leitast við að leggja mat á hvort hægt sé að lágmarka hindranir og tafir í því skyni að tryggja gagnsæi og jafnræði afhendingaröryggis um land allt um leið og aðkoma almennings er tryggð í samræmi við ákvæði Árósasamkomulagsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hafdís Jóhannsdóttir 1975-
Advisor dc:description.advisor
  • Fróði Steingrímsson 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/37685

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hafdís Jóhannsdóttir 1975-. Þarf að bæta lagaumhverfi sem snertir nýjar framkvæmdir í flutnings- og dreifikerfi raforku til samræmis við viðmið og málsmeðferð annarra leyfisveitinga?. 2021. https://hdl.handle.net/1946/37685