Bifröst University
Krísusamskipti Icelandair á meðan kjaradeila við Flugfreyjufélag Íslands stóð yfir árið 2020
Abstract
dc:description.abstractÞegar fyrirtæki ganga í gegnum krísur geta þær haft gríðarleg áhrif á rekstur þess, en veruleg vitundarvakning hefur orðið á síðustu áratugum um krísustjórnun og krísusamskipti fyrirtækja og hvernig fyrirtæki geta stuðlað að því að koma í veg fyrir þær og tryggt það að fyrirtækið sem og hagaðilar komi sem best út úr henni. Árið 2020 hefur verið mikil áskorun fyrir Icelandair en ofan á krísuna um flughæfni Boeing 737 Max vélanna og Covid-19 heimsfaraldurinn þá kom upp stór krísa fyrri hluta árs þegar að mikil kjaradeila fór í gang á milli Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands. Í þessu verkefni var rannsakað, skoðað og greint hvernig krísusamskipti Icelandair voru á meðan kjaradeilunni fór fram og krísusamskiptin tengd við helstu krísustrategíur krísustjórnunar, þá sérstaklega Situational Crisis Communication Theory. Farið var yfir atburðarrásina og krísusamskiptin greind með því að skoða opinbert efni á við fréttatilkynningar, viðtöl, yfirlýsingar og fleira um kjaradeiluna. Helstu niðurstöðurnar voru þær að í raun er ekki hægt að segja að Icelandair hafi notað eina ákveðna krísustrategíu í svörum sínum, heldur meira hafi verið að svara fyrir hvern og einn atburð í senn og án þess að halda sig við einhverja markvissa krísusvörun. Þó mátti sjá ákveðnar strategíur sem hægt var að tengja krísusvörunina oftar við en aðrar og áhugavert var að sjá hvernig eitt stærsta fyrirtæki landsins tókst á við jafn stóra krísu og raun bar vitni. Einnig eru lagðar fram aðrar tillögur um áhugaverð rannsóknarefni sem vert væri að skoða og rannsaka í framtíðinni. Lykilorð: Krísa, krísustjórnun, krísusamskipti, Icelandair, Flugfreyjufélag Íslands, strategía, Situational Crisis Communication Theory.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sveinbjörg Lilja Guðrúnardóttir 1995-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Andrea Guðmundsdóttir 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/37691