Bifröst University
Líðan í starfi og viðhorf til stjórnunar : starfsmenn Vinnumálastofnunar
Abstract
dc:description.abstractLíðan starfsmanna er mikilvæg frá sjónarhóli starfsmanna sjálfra og einnig með hliðsjón af árangri skipulagsheilda. Fyrri rannsóknir sýna að viðhorf starfsmanna til stjórnunar hjá næsta yfirmanni tengist starfsánægju og vellíðan starfsmanna í starfi. Álag í starfi meðal opinberra starfsmanna hér á landi hefur aukist undanfarin ár og mikilvægt er að varpa enn frekara ljósi á líðan þeirra. Tilgangur rannsóknarinnar er að kanna hvernig starfsmönnum opinberrar stofnunar hér á landi líður í starfi sínu og hvert viðhorf þeirra er til þjónandi forystu. Gerð var spurningalistakönnun meðal starfsmanna Vinnumálstofnunar þar sem spurt var um viðhorf þeirra til þjónandi forystu næsta yfirmanns og líðan þeirra í starfi miðað við einkenni kulnunar í starfi og ánægju í starfi. Gögn voru greind með lýsandi tölfræði. Niðurstöður gefa vísbendingar um að stjórnendur Vinnumálastofnunar vinna eftir hugmyndafræði þjónandi forystu að einhverju leyti. Þá sýna niðurstöður að starfsánægja starfsmanna er almennt góð og að meirihluti starfsmanna upplifi lítil einkenni kulnunar í starfi. Niðurstöður sýna jákvæð tengsl milli þjónandi forystu næsta yfirmanns og starfsánægju. Einnig komu í ljós neikvæð tengsl á milli þjónandi forystu og einkenna kulnunar í starfi. Niðurstöður eru í takt við niðurstöður fyrri rannsókna og gefa vísbendingar um að þjónandi forysta geti haft jákvæð áhrif á vellíðan starfsmanna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þórdís Helga Benediktsdóttir 1976-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Sigrún Gunnarsdóttir 1960-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/37695