Back to search

Bifröst University

Auglýsingar á samfélagsmiðlum : viðhorf íslenskra neytenda til auglýsinga á samfélagsmiðlum og áhrif á kauphegðun þeirra

Abstract

dc:description.abstract

Tilkoma samfélagsmiðla hefur gjörbreytt samskiptum fólks hvert við annað í daglegu lífi. Flestir Íslendingar eru virkir notendur á samfélagsmiðlum og hefur sú staða veitt fyrirtækjum möguleika á að ná betur til sinna viðskiptavina en áður í gegn um Internetið. Meirihluti íslenskra fyrirtækja eru jafnframt virk á samfélagsmiðlum og auglýsa vörur sínar og þjónustu í því skyni að viðskipti eigi sér stað í kjölfarið. Notendur samfélagsmiðlanna sjá því oftar en ekki mikið af auglýsingum er þeir vafra um á sínum persónulegu aðgöngum frá bæði íslenskum og erlendum fyrirtækjum. Rannsókn þessi hefur það að markmiði að greina viðhorf íslenskra neytenda til auglýsinga á samfélagsmiðlum og komast að því hvað það er sem hefur áhrif á kauphegðun fólks í kjölfar þeirra. Einnig að greina niðurstöður eftir aldri, kyni og notkun þátttakenda á samfélagsmiðlum. Rannsóknin var framkvæmd í formi spurningakönnunar sem dreift var á samfélagsmiðlinum Facebook og tóku alls 251 einstaklingar þátt í henni. Niðurstöður leiddu í ljós að viðhorfið til auglýsinga á samfélagsmiðlum var almennt nokkuð jákvætt meðal þátttakenda. Hlutleysi var þó á meðal 23% þeirra en 53% þeirra svöruðu jákvætt og aðeins 24% svöruðu neikvætt. Niðurstöður benda einnig til þess að því eldri sem þátttakendur eru því neikvæðara er viðhorf þeirra til auglýsinga á samfélagsmiðlum. Konur voru þó almennt séð jákvæðari heldur en karlmenn samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar. Konur telja almennt að auglýsingar á samfélagsmiðlum hafi meiri áhrif á kauphegðun þeirra heldur en karlar og þeir sem hafa unnið við eða vinna við auglýsingagerð eru almennt jákvæðari gagnvart auglýsingum á samfélagsmiðlum heldur en aðrir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Vigdís Sveinsdóttir 1996-
Advisor dc:description.advisor
  • Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/39529

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Vigdís Sveinsdóttir 1996-. Auglýsingar á samfélagsmiðlum : viðhorf íslenskra neytenda til auglýsinga á samfélagsmiðlum og áhrif á kauphegðun þeirra. 2021. https://hdl.handle.net/1946/39529