Abstract
dc:description.abstractÚtdráttur Stofnanir eru settar á fót með lögum sem ákvarða skipulag þeirra (sjálfstæðar undirstofnanir). Stundum er sett stjórn en hlutverk hennar er mismunandi hverju sinni og ekki eru til lög sem skilyrða að stjórn skuli starfa yfir öllum stofnunum sem heyra undir ráðuneytin. Hvorki er að finna lög né samhæft regluverk innan stjórnsýslunnar um hvernig því er háttað þegar stofnun er sett á fót. Þá þykir heldur ekki vera til skýrt og afmarkað hlutverk stjórna innan stofnunar gagnvart stjórnendum. Farið er yfir mismunandi hlutverk stjórna og einnig er farið í að skoða hvernig misræmi regluverks innan stjórnsýslunnar, m.a. milli ráðuneytanna, getur framkallað óskýrar valdheimildir sem leiða af sér ýmsa meinbugi við stjórnun stofnana. Framangreint ósamræmi í regluverki getur til dæmis leitt af sér verulega óvissu um ábyrgð og hlutverk stjórna. Í niðurstöðum er fjallað um skýrslu verkefnastjórnar sem kom út í apríl 2015 og var unnin með samþykki ríkisstjórnar ásamt Ríkisendurskoðun. Samkvæmt henni voru lagðar fram tillögur um að skilgreindar verði í lögum tvær tegundir stjórna þar sem hlutverk stjórna sé skilgreint með afmarkaðir og skýrari hætti en gert hefur verið. Í niðurstöðu skýrslu til Alþingis sem Ríkisendurskoðun gaf út í júní 2018 kemur fram að unnið hefur verið að því að undanförnu að samræma og skilgreina betur þátt stjórnar í því samhengi. Þessar breytingar fela í sér að stjórnir eru nú skilgreindar sem ráðgefandi og er það gert til að tryggja að valdframsal sé innan þess ramma sem lög um stjórnarskrá lýðveldisins nr. 44/1944 segir til um. Of dreifð valdheimild getur orsakað misbrest í stjórnun stofnunar og einnig getur það verið óljóst hvar ákvörðunarvaldið liggur. Reglugerðir hafa verið settar til að skýra betur það hlutverk sem ætlast er til af stjórnum. Ástæður þess að stjórn er sett innan stofnana eru óskýrar í ljósi þess að hvert og eitt ráðuneyti hefur haft sinn háttinn á þegar kemur að því að setja stofnun á laggirnar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Gróa H. Rósinkransa Jónsdóttir 1971-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Ari Karlsson 1979-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/39561