Bifröst University
Hvað ræður hugsanlega för þegar íslenskir neytendur velja efnisveitu?
Abstract
dc:description.abstractMarkaður efnisveita með sjónvarpsefni á Íslandi hefur tekið hröðum breytingum síðastliðið ár vegna aukins framboðs efnisveita á Íslandi. Hröð þróun tækninnar og alþjóðavæðing hefur stuðlað að þessum breytingum. Tvær erlendar efnisveitur komu nýjar inn á íslenskan markað á síðasta ári og ljóst er að fleiri munu fylgja í kjölfarið. Erlendar efnisveitur eru ekki bundnar við þá löggjöf sem gildir hér á landi líkt og þær tvær íslensku efnisveitur sem hér eru starfandi. Samkvæmt lögum verða íslensku efnisveiturnar að þýða og setja texta við allt erlent efni sem þær bjóða upp á. Íslensk kvikmyndahús og fjölmiðlar eyða tæplega 500 milljónum árlega í það eitt að þýða og talsetja erlent efni. Í þessu verkefni er skoðað hvaða þættir það eru sem skipta íslenska neytandann mestu máli þegar kemur að vali á efnisveitu. Þetta er skoðað út frá þeim eiginleikum sem stafrænar vörur búa yfir, sem og neytendahegðun og alþjóðavæðingu. Niðurstöður spurningakönnunarinnar gefa til kynna að þættir sem skipta íslenska neytendur hvað mestu máli er úrval efnis sem hver efniveita býður upp á og kostnaðurinn við að vera með aðgang að efnisveitunni. Einnig sýna niðurstöður að sá þáttur sem skiptir íslenska neytendur minnstu máli er það að hafa íslenskan texta á erlendu efni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Dagný Steinarsdóttir 1987-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/39564