Back to search

Bifröst University

Kennsla í kórónuveirufaraldri : upplifun kennara á grunnskólastigi af fjarkennslu í Covid-19

Abstract

dc:description.abstract

Í þessu lokaverkefni eru kynntar niðurstöður rannsóknar á upplifun íslenskra grunnskólakennara af fjarkennslu í Covid-19 faraldri árið 2020. Rætt var við bæði umsjónarkennara og list- og verkgreinakennara og var markmiðið að fá sem fjölbreyttast sjónarhorn á upplifun kennara af fjarkennslu. Beitt var eigindlegum rannsóknaraðferðum við vinnslu verkefnisins og rætt var við fimm kennara frá tímabilinu janúar - mars 2021. Voru allir enn starfandi kennarar þegar rannsóknin var unnin en fjarkennslan hafði farið fram á mismunandi tímabilum yfir árið 2020. Tilgangur rannsóknarinnar var að varpa ljósi á upplifun kennara af fjarkennslu þegar Covid-19 faraldurinn reið yfir, fara yfir tækni og forrit sem nýtt voru og skoða þau tækifæri sem þessi tækni býður upp á í kennsluumhverfi grunnskóla eftir að faraldri lýkur. Helstu niðurstöður benda til þess að meira álag og aukin streita hafi fylgt starfi umsjónarkennara en list- og verkgreinakennara. Ástæður þess eru persónulegt utanumhald umsjónarkennara um nemendur sína, aukin samskipti við foreldra og aukin krafa á eftirfylgni vegna heimanáms nemenda. Einnig að þeir þurftu að læra á forrit sem ekki höfðu verið notuð almennt í kennslu fram að því. Almenn ánægja ríkti hjá kennurum um fyrirkomulag fjarkennslu og var upplifun meira jákvæð heldur en neikvæð. Voru kennarar þó sammála um að að þeir hefðu viljað vera betur undirbúnir fyrir fjarkennslu þegar að faraldurinn skall á. Allir voru þeir sammála um að tæknin sem notast var við, komi að góðum notum í áframhaldandi kennslu þó að vissulega sé ákjósanlegast að kenna nemendum áfram í kennslustofu. Hægt sé að styðjast þá við tæknina að hluta til, á þann háttinn að hún taki ekki yfir og hafi neikvæð áhrif á mannleg samskipti í skólastofunni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eva Björk Lowe 1987-
Advisor dc:description.advisor
  • Guðbjörg Hildur Kolbeins 1967-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/39565

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eva Björk Lowe 1987-. Kennsla í kórónuveirufaraldri : upplifun kennara á grunnskólastigi af fjarkennslu í Covid-19. 2021. https://hdl.handle.net/1946/39565