Bifröst University
Í upphafi var diplómasían : skipulagning meistaranáms í diplómasíu fyrir Háskólann á Bifröst.
Abstract
dc:description.abstractTilgangur þessa hagnýta verkefnis er að rannsaka hvernig háskólinn á Bifröst geti byggt upp samkeppnishæft meistaranám í diplómasíu. Hugtakið diplómasía er snúið í þýðingu og er oft talið eiga við utanríkisþjónustu í heild sinni. Fræðileg skilgreining á diplómasíu vísar hins vegar til aðferða sem notaðar eru til að ná utanríkismarkmiðum stjórnvalda. Með því að skoða veraldarsöguna má sjá þróun þessara aðferða og jafnvel hvaða verkfæri diplómasíu eigi að leggja áherslu á að kenna í nútímanum og nánustu framtíð. Verkefni íslensku utanríkisþjónustunnar gefa sýn á raunveruleg verkefni diplómata, þó mikilvægt sé að átta sig á því að þátttakendur í alþjóðakerfinu eru ekki takmarkaðir við starfsmenn utanríkisráðuneytisins og að nám í diplómasíu er gagnlegur undirbúningur fyrir ýmis önnur störf. Tekin voru viðtöl við íslenska og erlenda diplómata til að fá innsýn í reynsluheim þeirra og álit á því hvaða menntun og þjálfun nýtast best fyrir starfið. Nám í diplómasíu við virta erlenda skóla var skoðað til að fá hugmyndir um hvernig best skuli skipuleggja námið, framboð námsgreina og kennsluaðferðir. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að kenna þurfi fræðileg kjarnafög á sviði stjórnmálafræði, lögfræði, sagnfræði, alþjóðafræði, alþjóðasamskipta, hagfræði og alþjóðlegra efnahagsmála og þjálfa færni til röksemdafærslu, rannsókna og gagnrýnis mats til að greina alþjóðleg málefni. Samvinna við erlenda skóla eykur fjölda valnámskeiða og þar með möguleika á sérhæfingu, auk þess sem alþjóðasamvinna í náminu undirbýr nema fyrir það sem koma skal í starfi. Jafnvel enn mikilvægara er að þjálfa færni til að nýta verkfærakistu diplómaísunnar, eins og samskipti, leiðtoga- og stjórnunarhæfileika, samningatækni, framsögn, kynningar, menningarlæsi, stjórnun almannatengsla, framkomu, prótokoll og siðareglur. Af ofangreindu má álykta að til að námið sé samkeppnishæft þurfi að vanda vel til skipulagningar. Áhersla þarf að vera á góða kennara, gestafyrirlesara og raunhæf verkefni, tilviksrannsóknir, hermilíkön, starfsnám, heimsóknir í stofnanir og þátttöku í alþjóðlegum ráðstefnum. Lagt er til að Háskólinn á Bifröst myndi evrópskt menntasetur, fræðamiðstöð sem brúar það besta beggja vegna Atlantsála í samvinnu við evrópska og ameríska skóla.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ólöf Dögg Sigvaldadóttir 1973-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Eiríkur Bergmann Einarsson 1969-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/39577