Abstract
dc:description.abstractMeðvitund um heilbrigt starfsumhverfi hefur aukist til muna síðastliðna áratugi en um helmingur launþega í Evrópu telur streitu vera algengt vandamál á sínum vinnustað. Rannsóknir hafa sýnt að sálfélagslegir þættir geta skipt sköpum er varða jákvæð áhrif á vellíðan starfsfólks og er því mikilvægt að stjórnendur átti sig á hvaða þættir það eru. Þeir sem eru í forystunni geta haft bein áhrif á vellíðan starfsfólks með því að greiða fyrir þeim þáttum sem hafa jákvæð áhrif á vellíðan og rannsóknir hafa sýnt að þjónandi forysta tengist vellíðan starfsmanna. Álag í starfi kennara hefur aukist undanfarin ár og mikilvægt að auka þekkingu um árangursríkar leiðir til að styðja við vellíðan starfsfólks í skólum. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á áherslur stjórnenda í skólum sem komið hafa vel út í könnum um líðan starfsmanna og draga fram reynslu þeirra af árangursríkum leiðum til að auka vellíðan starfsfólks. Einnig var kannað hvort þær áherslur væru í takt við hugmyndafærði þjónandi forystu. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð og tekin voru hálfopin viðtöl við níu stjórnendur sem starfa við grunnskóla sem áður höfðu mælst hátt í áreiðanlegum könnunum hvað varðar vellíðan starfsfólks. Niðurstöður rannsóknarinnar gáfu til kynna að þeir stjórnendur sem rætt var við voru meðvitaðir um þætti er varða vellíðan starfsfólks síns og leggja áherslu á að sinna þeim þáttum vel og telja það vera grunninn að árangursríku skólastarfi. Niðurstöður rannsóknarinnar eru í takt við fyrri rannsóknir og þekkingu á sviðinu svo sem um gildi góðra samskipta, tækifæri til vaxtar, að hafa áhrif á eigið starf, að sýnin sé skýr sem og sameiginlegur tilgangur og markmið sem reynst hefur stjórnendum vel til að auka við vellíðan starfsfólks. Í ljós koma að þær áherslur sem stjórnendur leggja til við að auka vellíðan starfsfólks endurspegla nokkuð vel lykilatriði hugmyndafærði þjónandi forystu. Niðurstöður rannsóknarinnar eru framlag til þróunar þekkingar um heilbrigt starfsumhverfi í skólum og má nýta á sviði stjórnunar í grunnskólum sem og annars staðar. Lykilorð: vellíðan í starfi, heilbrigt starfsumhverfi, núvitund, efling, skýr sýn, þjónandi forysta.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðrún Árný Guðmundsdóttir 1978-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Sigrún Gunnarsdóttir 1960-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/40094