Abstract
dc:description.abstractViðfangsefni í þessari rannsókn er að skoða hverjir voru helstu þættir og áskoranir við innleiðingu á LS Central viðskiptakerfinu hjá Bláa Lóninu. Rannsóknin var framkvæmd með eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem að tekin voru viðtöl við níu einstaklinga sem komu að innleiðingunni og notast var við hálfopin viðtöl til að öðlast dýpri þekkingu á viðfangsefninu. Skoðað voru hverjir helstu árangursþættirnir eru í innleiðingum á viðskiptakerfum og hvernig eða hvort var tekið mið af þeim. Einnig var skoðað breytingamódel Kotter‘s og hvernig það getur nýst í breytingum sem þessum, módelið er borið saman við niðurstöðurnar og sýnt fram á að það er ómeðvitað farið eftir því. Niðurstöður þessarar rannsóknar sýndu að það var farið fram hjá nokkrum af mikilvægu árangursþáttunum sem sýnir fram á hvers vegna þeir eru mikilvægir og geta stuðlað að árangri í verkefnum sem þessum. Væntingastjórnun átti stóran hluta í þeim þáttum sem var mögulega stiklað á stóru í og voru margir viðmælendur ekki sáttir með hvernig henni var háttað eða að henni voru ekki gerð nægilega góð skil. Helstu áskoranirnar voru þá væntingastjórnun, stuðningur frá stjórn og samvinna og samskipti milli sviða. Lykilhugtök: Viðskiptakerfi, innleiðing, Kotter módel, endurmótun viðskiptaferla, mikilvægir árangursþættir, Bláa Lónið, LS Retail, LS Central
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Fanney Ösp Finnsdóttir 1994-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Andrea Guðmundsdóttir 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/40097