Back to search

Bifröst University

Viðskiptatryggð viðskiptavina matvöruverslana

Abstract

dc:description.abstract

Matvörumarkaðurinn á Íslandi hefur tekið miklum breytingum á seinni árum. Breytingarnar má meðal annars rekja til þátttöku landsins í alþjóðavæðingunni. Matvöruverslanir hafa stækkað verulega en að sama skapi hefur þeim fækkað. Örfáar fyrirtækjakeðjur og eignarhaldsfélög eru að mestu einráð á íslenska matvörumarkaðnum. Þessar stóru verslanir eru tilkomnar vegna eftirspurnar neytenda eftir betri kjörum og meira vöruúrvali. Verslanakeðjurnar á matvörumarkaðnum á Íslandi virðast leggja áherslu á hagstæð verð, en mismikla áherslu á vöruúrval. Þeim sem hafa minnsta vöruúrvalið tekst oftast að bjóða lægra verð en þær verslanir sem eru með mesta vöruúrvalið. Almennt má segja að góður kaupmáttur hafi ríkt á Íslandi mörg undanfarin ár. Núna er þó annað uppi á teningnum í þeim efnum. Kaupmáttur hefur sem sé rýrnað verulega vegna bankahrunsins og þá mest vegna gengisfalls íslenska gjaldmiðilsins. Skýrsluhöfundur vildi kynna sér hvort eða hvernig innkaupavenjur almennings hefðu breyst á þeim mánuðum sem liðnir eru frá bankahruninu. Þá þótti honum einnig áhugavert að kanna hvort viðskiptatryggð viðskiptavina matvöruverslana væri til staðar og hvort hún hefði breyst í kjölfar bankahrunsins. Af niðurstöðum skýrslunnar verður varla séð að viðskiptatryggð risti djúpt hjá þeim viðskiptavinum sem spurðir voru. Efnahagslægðin veldur því að flestir verða að láta budduna ráða innkaupum sínum. Viðskiptatryggðin takmarkast við það að vara sé til staðar á tilteknu verði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Telma Bergmann Árnadóttir 1986-
Advisor dc:description.advisor
  • Einar Svansson 1958-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/4044

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Telma Bergmann Árnadóttir 1986-. Viðskiptatryggð viðskiptavina matvöruverslana. 2009. https://hdl.handle.net/1946/4044