Back to search

Bifröst University

Upptaka evru á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Megin tilgangur þessa verkefnis er að leggja mat á þær leiðir sem eru í boði fyrir Ísland við upptöku evru. Helstu kostir og gallar hverjar leiðar fyrir sig eru metnir ásamt því að skoða hvaða afleiðingar það hefur fyrir Íslenska hagkerfið að taka upp evru sem lögeyri. Fjallað er um helsta markmið núverandi peningastefnu Seðlabanka Íslands, verðbólgumarkmiðið sem sett var fram árið 2001 og er sýnt svart á hvítu árangur stefnunnar á undanförnum árum. Gengissveiflur íslensku krónunnar jukust mikið við flotsetningu, en verð hennar ræðst eingöngu á gjaldeyrismarkaði. Mikið flöktandi gengi kemur sér mjög illa fyrir fyrirtæki sem starfa á milliríkjamarkaði. Alþingi Íslands hefur ákveðið að hefja viðræður um aðild að Evrópusambandinu. Ætla má að ef Ísland fær inngöngu munu hefjast viðræður um aðild að Myntbandalagi Evrópu í kjölfarið. Evran ekki fylgir ekki beint í kjölfarið heldur mun aðlögunarferlið ERM II fara í gang. Í aðlögunarferlinu þarf Ísland að uppfylla skilyrði ERM II samfleytt í tvö ár áður en landið gengur formlega í myntbandalagið. Við hrunið á Íslandi missti krónan allan trúverðugleika og tekur það mjög langan tím, fyrirhöfn og fjármagn að vinna hann til baka. Ísland er aðili að Evrópska Efnahagssvæðinu, í því felst að landið er aðili að innra markaði Evrópu, við upptöku evru mun það hafa í för með sér fullkomna aðild að innra markaði Evrópu sem felur í sér stóraukin viðskipti án allrar gengisáhættu. Ef aðildarviðræðurnar ganga ekki mun ísland þurfa að beyta öðrum leiðum við upptöku evru.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Daníel Gunnar Sigurðsson 1982-
Advisor dc:description.advisor
  • Guðmundur Ólafsson 1947-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/4049

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Daníel Gunnar Sigurðsson 1982-. Upptaka evru á Íslandi. 2009. https://hdl.handle.net/1946/4049