Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerð þessari er gerð grein fyrir tilkynningarskyldu til neytenda við kröfuhafaskipti. Farið verður yfir helstu réttarreglur íslensks réttar sem eiga við. Einnig hvaða tilskipanir á evrópska efnahagssvæðinu gilda um framsal kröfuréttinda og reynt að varpa ljósi á hvort þær innihaldi leiðbeiningar um tilkynningar á framsali kröfuréttinda. Að auki verða skoðaðir dómar og úrskurðir sem snúa að framsali kröfuréttinda og reynt að leiða í ljós út frá þeim hvort þeir hafi að geyma upplýsingar sem hægt sé að fylgja þegar tilkynna á neytanda um framsal réttar. Skoðað verður á hverja framsal kröfuréttinda getur haft áhrif og dregin upp mynd af því hvernig hægt sé að upplýsa sem best um framsal kröfuréttinda. Í ritgerðinni verður lagt til hvernig hægt væri að hátta tilkynningum til neytenda. Helsta niðurstaðan er sú að eina lögfesta meginreglan um framsal réttinda er í 19. gr. laga um neytendalán nr. 33/2013 um framsal réttar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Elmar Guðlaugsson 1993-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Unnar Steinn Bjarndal Björnsson 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/40515