Back to search

Bifröst University

Geta fyrirtæki nútímans verið "kaupmaðurinn á horninu" með hjálp CRM?

Abstract

dc:description.abstract

CRM (e. customer relationship management) stendur fyrir stjórnun viðskiptatengsla en CRM starf íslenskra fyrirtækja er að verða meira áberandi og hefur aukin vitundarvakning átt sér stað meðal fyrirtækja hvernig CRM starf getur haft áhrif á þjónustu fyrirtækja við viðskiptavini sína. Þær spurningar sem lagðar voru upp með í rannsókn þessari voru: „Hversu vel nýta íslensk fyrirtæki CRM starf til að kynnast viðskiptavinum sínum?“ og: „Hvernig hagnýta fyrirtæki upplýsingarnar úr CRM starfi til að veita betri þjónustu til viðskiptavina sinna?“ Þar sem aukin samkeppni ríkir á flestöllum mörkuðum í dag var spurningum þessum ætlað að svara því hvernig íslensk fyrirtæki sinntu CRM starfi sínu með tilliti til að kynnast viðskiptavinum sínum ásamt því að bæta eða auka við þjónustu sína með því að nýta þær upplýsingar sem fyrirtækin búa yfir. Framkvæmd var eigindleg rannsókn í formi djúpviðtala þar sem tekin voru viðtöl við átta fyrirtæki sem starfa á íslenskum markaði. Fyrirtækin voru mislangt á veg komin í CRM vegferð sinni, þau voru af ólíkri stærðargráðu og störfuðu á ólíkum vettvangi. Þetta var gert til að fá þverskurð af íslenskum markaði og gefa því rannsakendum innsýn í hvernig CRM starfi væri háttað á íslenskum markaði. Niðurstöður rannsóknar leiddu í ljós að tilgangur þess að fyrirtæki hefðu ástundað CRM starf væri til að geta þjónustað viðskiptavini sína betur en einnig væri markmið þeirra að geta auðveldað ferla, bætt skilvirkni starfseminnar og halda betur utan um upplýsingar um viðskiptavini og þar af leiðandi að kynnast þeim betur. Mörg fyrirtækjanna glíma við takmarkanir vegna GDPR (General Data Protection Regulation) og eru þau markvisst að finna leiðir til að bæta CRM starf sitt ásamt því að framfylgja þeim reglugerðum. Einnig leiddu niðurstöður í ljós að margt mætti betur fara og eru fleiri möguleikar í boði fyrir þessi fyrirtæki til að gera enn betur í CRM starfi sínu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Alma Katrín Einarsdóttir 1998-
  • María Guðvarðardóttir 1976-
Advisor dc:description.advisor
  • Ragnar Már Vilhjálmsson 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/40526

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Alma Katrín Einarsdóttir 1998-; María Guðvarðardóttir 1976-. Geta fyrirtæki nútímans verið "kaupmaðurinn á horninu" með hjálp CRM?. 2022. https://hdl.handle.net/1946/40526