Back to search

Bifröst University

Áhrif stafrænnar þróunar á kvartanameðhöndlun fyrirtækja á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Hraðinn sem fylgir fjórðu iðnbyltingunni hefur engin söguleg fordæmi og þegar núverandi iðnbylting er borin saman við fyrri iðnbyltingar er þróun hennar veldisvaxandi (e. exponential) fremur en línuleg (e. linear). Í ofanálag hefur fjórða iðnbyltingin haft tvístrandi (e. disruptive) áhrif á nánast allar atvinnugreinar í öllum löndum. Stafræn þróun hefur opnað möguleika fyrir nýjar vörur og þjónustu sem geta aukið skilvirkni (e. efficiency) og ánægju í lífi neytenda. Þjónustubrestir og misheppnaðar kvartanameðhöndlanir eru meðal helstu ástæðna þess að viðskiptavinur skiptir yfir til samkeppnisaðilans og því er sterk og skýr kvartanameðhöndlun mikilvæg til þess að byggja upp viðskiptavinasamband, auka ánægju og koma í veg fyrir brottfall viðskiptavina (e. customer defection). Hvaða áhrif hefur stafræn þróun haft á kvartanameðhöndlun fyrirtækja á Íslandi? Rannsóknin var annars vegar framkvæmd með spurningakönnun sem var send til neytenda í gegnum fyrirtækjaaðgang rannsakanda á samfélagsmiðlinum Facebook. Þátttakendur könnunarinnar voru 610 talsins. Svörum neytenda úr spurningakönnuninni var ætlað að varpa ljósi á kvartanahegðun með tilkomu stafrænnar þróunar. Hins vegar voru tekin viðtöl við markaðsfulltrúa fimm íslenskra fyrirtækja. Svörum markaðsfulltrúa úr viðtölunum var ætlað að varpa ljósi á kvartanameðhöndlun þessara fyrirtækja og hvernig stafræn þróun hefur haft áhrif á slíka meðhöndlun. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að stafræn þróun hefur haft óyggjandi áhrif á kvartanameðhöndlun fyrirtækja á Íslandi. Fyrirtæki geta nýtt sér stafræna þróun til þess að halda utan um kvartanir viðskiptavina sinna og lært hvað mætti betur fara. Þá hefur þetta einnig í för með sér greiðara aðgengi fyrir viðskiptavini til þess að láta vita af þjónustubresti og fyrirtækið getur þannig brugðist við og haldið viðskiptavininum ánægðum og í áframhaldandi viðskiptum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bryndís Hrönn Kristinsdóttir 1994-
Advisor dc:description.advisor
  • Vera Dögg Höskuldsdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/40529

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bryndís Hrönn Kristinsdóttir 1994-. Áhrif stafrænnar þróunar á kvartanameðhöndlun fyrirtækja á Íslandi. 2022. https://hdl.handle.net/1946/40529