Back to search

Bifröst University

Gæðastýring í sauðfjárrækt : sauðfjárræktendum og neytendum á Íslandi til hags eða einungis óskilvirkt skýrsluhaldskerfi?

Abstract

dc:description.abstract

Gæðastýring í sauðfjárrækt var sett á árið 2003 og er áhersla þessarar rannsóknar að kanna hvort settum markmiðum hafi verið náð. Aðalmarkmiðin voru bæting sauðfjárbúskapar, tryggari afkoma bænda og öruggari vörur fyrir neytendur. Rannsóknarspurningin var: Gæðastýring í sauðfjárrækt: Er settum markmiðum náð og hvert er viðhorf bænda? Við framkvæmd rannsóknarinnar var notast við megindlega rannsóknaraðferð en hún fór fram með spurningakönnun sem lögð var fyrir sauðfjárbændur sem eru þátttakendur í gæðastýringu, um allt land. Helsta markmið könnunarinnar var að leitast eftir viðhorfi bænda til ýmissa þátta gæðastýringar eins og t.d. notagildi gæðahandbókarinnar, upplýsingagjöf til neytenda og heildarálit á fyrirkomulaginu. Einnig voru tekin viðtöl við reynslumikla aðila úr ýmsum áttum í sauðfjárrækt til að styðja við fræðilegan bakgrunn. Niðurstöður megindlegu könnunarinnar sýndu að gæðastýringin í núverandi mynd getur hjálpað að halda utan um rekstur sauðfjárbænda og stuðla að bættum búskaparháttum. Almennt er jákvætt viðhorf gagnvart gæðahandbókinni og notagildi hennar. Hvort gæðastýring stuðli að öruggari vörum hafa viðmælendur skiptar skoðanir hvað það varðar. Hins vegar er töluverður brestur í því að neytendur geti rakið uppruna lambakjöts og gæðaflokkun þess. Niðurstöður viðtala við fagaðila studdu niðurstöður megindlegu könnunarinnar. Sumum upphaflegum markmiðum frá setningu gæðastýringar árið 2003 er að vissu leyti náð, en ekki öllum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurlín Franziska Arnarsdóttir 2001-
Advisor dc:description.advisor
  • Jóhannes Baldvin Pétursson 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/40542

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurlín Franziska Arnarsdóttir 2001-. Gæðastýring í sauðfjárrækt : sauðfjárræktendum og neytendum á Íslandi til hags eða einungis óskilvirkt skýrsluhaldskerfi?. 2022. https://hdl.handle.net/1946/40542