Abstract
dc:description.abstractNotkun samfélagsmiðla hefur aukist á síðustu árum og það eru margar tegundir forrita til að velja úr. Algengt er að fyrirtæki séu á samfélagsmiðlum með það í huga að vera samkeppnishæf á íslenskum markaði. Samfélagsmiðlar hafa þann eiginleika að notendur geta átt samskipti á mismunandi hátt. Það er til dæmis hægt að setja athugasemdir við færslur, skilaboð á síðu annarra notenda eða senda einkaskilaboð. Þróunin hefur orðið til þess að boðleiðir frá neytendum til neytenda eða fyrirtækja til neytenda og öfugt, eru styttri en áður. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort að vörumerki séu að nýta samfélagsmiðla sína til að skapa vörumerkjavirði í hug neytenda. Þá var kannað hvernig vörumerki geta hagað samskiptum sínum samkvæmt neytendum, sem og hvað það er sem neytendur eru að fylgja á samfélagsmiðlum. Fyrst verður fjallað á fræðilegan hátt um efni vörumerkis og uppbyggingu vörumerkjavirðis. Niðurstöður leiddu í ljós að fyrirtæki þurfa að vanda vel til verks í því að halda utan um samfélagsmiðla, ef takast á að ná til neytenda. Þá má álykta að ef fyrirtæki fara rétt að því að stjórna samfélagsmiðlum, þá eigi þau möguleika á því að nýta samfélagsmiðla til að auka vörumerkjavirði í hug neytenda.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Helga Margrét Ásgeirsdóttir 1988-
- Stefanía Björg Jónsdóttir 1987-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/40544