Bifröst University
Erum við ekki bara að reyna að halda okkur á lífi? Stefnumótun og rekstur sjálfstæðra sviðslistastofnana
Abstract
dc:description.abstractKenningar um stefnumótun eru margar og mótsagnakenndar. Töluvert af bókum, fræðigreinum og vangaveltum hafa verið skrifaðar um nauðsyn þess að fara í formlega stefnumótun og hvernig sé best að koma að slíkri vinnu. Fræðimenn og ráðgjafar hafa sett upp ýmiskonar módel sem stjórnendur hafa reynt að tileinka sér að einhverju leyti og fara eftir í stefnumótunarvinnunni. Það er síðan misjafnt hvað hentar hverjum og einum og hvað er raunverulega hægt að nýta úr fræðunum, þar sem stefna er síðan iðkuð í verki en er ekki eingöngu formúla á blaði. Einnig hefur verið erfitt fyrir fræðimenn að sanna það að stefnumótun sé nauðsynlegt ferli fyrir lífsafkomu stofnana, því vissulega starfa ekki allar stofnanir eftir stefnu. Í þessari ritgerð verða rekstur og stefna sjálfstæðra sviðslistastofnana skoðuð og sett í samhengi við ýmsar hugmyndir og kenningar innan stefnumótunarfræða. Varpað verður upp spurningunum; þurfa sjálfstæðar sviðslistastofnanir formlega stefnu og er til ein rétt leið til þess að vinna stefnu fyrir slíkar stofnanir? Rannsóknin byggist á eigindlegri viðtalsrannsókn þar sem tekin voru sex viðtöl við viðmælendur með ólíkan bakgrunn og hlutverk innan stefnumótunar- og sviðslistageirans.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Júlíana Kristín Jónsdóttir 1993-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Njörður Sigurjónsson 1974-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/40551