Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerðinni er fjallað um þau skilyrði sem dómarar telja ófrávíkjanleg við sakfellingu fyrir hótunarbrot eftir 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en slík hótun verður að vera af þeirri gerð að sá sem hótar telji að þolanda muni stafa ógn af henni og að hún sé tekin alvarlega af þeim sem hana heyrir. Einnig er lögð áhersla á að finna þau atriði sem geta aukið líkur á sakfellingu fyrir hótun, svo sem sakaferill geranda og fjöldi hótana. Fjallað er um varnaðaráhrif laga með sérstakri áherslu á fyrirbyggjandi áhrif refsiákvæða þegar kemur að hótunarbroti. Vegna þess að hótun verður aðeins sett fram með einhvers konar tjáningu er reynt að varpa ljósi á markalínuna þar sem tjáningarfrelsi og friðhelgi einkalífs manna mætast. Skoðað er það mismikla vægi sem lagt er á ótta þolanda þegar dómarar meta hvort hótun eigi undir refsiákvæði 233. gr. og þá er efni 233. gr. greint út frá sjónarmiðum lögskýringarfræða. Skrif Jónatans Þórmundssonar eru aðalheimildin um hótunarákvæðið sjálft en ýtarleg dómarannsókn var jafnframt nauðsynleg vegna þess að dómstólar hafa mótað hvernig ákvæðinu skal beitt og var lögð sérstök áhersla á nýlega héraðsdóma. Leitað er að áhrifum 233. gr. á aðrar greinar hegningarlaganna og fjallað er um greinileg áhrif hennar á: 73.; 106.; 108.; og 227. gr. a. Þá er búið til raunhæft dæmi en tilgangurinn með því er að leggja mat á hvort hægt sé að ákæra fyrir brot gegn 233. gr. þegar sett er fram hótun um hryðjuverk sem uppfyllir ekki skilyrði 100. gr. a. til sakfellingar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Róbert Viðarsson 1981-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Unnar Steinn Bjarndal Björnsson 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/40577