Back to search

Bifröst University

Andinn í Steypunni : hlutverk og listrænt gildi tónlistarhúss

Abstract

dc:description.abstract

Útdráttur Rannsókn um stöðu tónlistarflutnings innan Hörpu tónlistarhúss. Sjónaukanum er beint að opinberum fjárveitingum, menningarstefnu og hagrænum áhrifum skapandi greina, og þau skoðuð í ljósi hugtaka eins og listrænnar upplifunar og lýðheilsu. Rannsóknarverkefninu er skipt í fræðikafla og rannsókn. Rannsakandi notaðist við aðferðir tilviksrannsókna og eigindlegar rannsóknaraðferðir við gagnasöfnun og úrvinnslu gagna. Við greiningu á niðurstöðum studdist rannsakandi að mestu leyti við túlkandi greiningu, en einnig við íhugandi greiningu. Tekin voru 10 viðtöl við aðila tengdum tónlistarhúsinu og ríkir nafnleynd í rannsókninni. Helstu niðurstöður rannsóknar benda á að framþróun á tónlistarflutningi og listrænni stjórnun innan Hörpu sé stöðnuð sökum fjárskorts sem myndast vegna hárra fasteignagjalda sem leggjast á reksturinn. Niðurstöður gefa til kynna að Harpa geti ekki sinnt samfélagslegu hlutverki sínu nema við afnám fasteignagjalda eða endurskoðun á eðli hennar sem stofnun. Einnig benda þær á þörf fyrir listrænum stjórnanda og kjarnmiðaðri ímyndarsköpun innan starfsemi hússins. Í niðurstöðum setur rannsakandi fram nýtt hugtak út frá rannsóknum úr fræðikafla varðandi andleg og félagsleg áhrif tónlistarneyslu á einstaklinga, en það er hugtakið listræn lýðheilsa. Lykilorð: [Tónlistarhús, listræn lýðheilsa, Harpa, tónlistarflutningur, listræn upplifun, menningarneysla, menningarstjórnun, menningarvitund]

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Vilborg Ása Dýradóttir 1988-
Advisor dc:description.advisor
  • Kjartan Ólafsson 1958-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/40582

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Vilborg Ása Dýradóttir 1988-. Andinn í Steypunni : hlutverk og listrænt gildi tónlistarhúss. 2022. https://hdl.handle.net/1946/40582