Back to search

Bifröst University

Hlutverk forseta á 21. öldinni : hverjar eru valdheimildir forseta skv. stjórnarskrá og hvaða möguleika hefur forseti á að beita þeim?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð eru völd forseta Íslands dregin fram og skýrðar út þær heimildir sem liggja að baki þeim. Litið er til baka í söguna og séð hvernig fyrri forsetar beittu völdum sínum og hvaða augum þeir litu á þau völd. Beitt var lagalegri aðferð, eigindlegri og dogmatískri við söfnum heimilda og úrvinnslu þeirra upplýsinga sem þar komu fram. Sjónarhorn og skilningur fyrri og núverandi forseta, lögspekinga, fræðimanna, þingmanna, ráðherra og almennings gegnir lykilhlutverki. Settar eru fram rökstuddar hugmyndir um möguleika forseta á því að beita þeim völdum sem stjórnarskráin veitir honum. Það er einnig dregið fram með skýrum hætti að valdið kemur frá þjóðinni og það er almenningur sjálfur sem er stjórnarskrárgjafinn. Þetta kom vel í ljós þegar að Hr. Ólafur Ragnar Grímsson þáverandi forseti steig inn í það stjórnskipulega tómarúm sem myndaðist í kringum Icesave málið svokallaða. Hann tók að sér að vera málsvari og talsmaður ríkisvaldsins á alþjóðavettvangi og naut til þess yfirgnæfandi stuðnings landsmanna. Engu skipti þótt þingmenn eða ráðherrar mótmæltu því sem þeir töldu eigin utanríkisstefnu forsetans, hann fór sínu fram þrátt fyrir það. Helstu niðurstöður eru þær að forseti Íslands hefur ríkar valdheimildir samkvæmt stjórnarskrá og hann hefur möguleika á að beita þeim með ýmsum hætti. Við réttar aðstæður á réttum tíma með stuðning almennings hefur réttur einstaklingur í embætti forseta umfangsmikil völd.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hilmar Ingi Jónsson 1975-
Advisor dc:description.advisor
  • Unnar Steinn Bjarndal Björnsson 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/40586

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hilmar Ingi Jónsson 1975-. Hlutverk forseta á 21. öldinni : hverjar eru valdheimildir forseta skv. stjórnarskrá og hvaða möguleika hefur forseti á að beita þeim?. 2022. https://hdl.handle.net/1946/40586