Back to search

Bifröst University

Er grundvallarmunur á hefðbundnum kapítalisma sem byggir á hluthafanálgun og kapítalisma sem byggir á haghafanálgun? Er kapítalisminn raunhæf lausn á þeim framtíðaráskorunum sem blasa við?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn verður fjallað um tvær ólíkar nálganir á kapítalísku hagkerfi. Það kapítalíska hagkerfi sem hefur búið til sem mesta velmegun er farið að hafa slæm áhrif á vistkerfið okkar, jafnrétti og traust á stofnanir. Í dag er hið kapítalíska kerfi í anda hluthafakenningarinnar, þar sem eina viðmiðið í rekstri fyrirtækja sem telur þegar upp er staðið er að þau skapi arð fyrir eigendur sína. Margir aðilar eins og The B-Team binda vonir við að kapítalismin í anda hluthafakenningarinnar sé leiðin út úr þessu. Ætlunin er að skoða hvað kapítalismi er, á hvaða kenningum hann er byggður og hvort eitthvað í grunngerð hans komi í veg fyrir að hann þróist í þá átt. Það er ljóst að við þurfum breytingar og spurningin er hvort einhvers konar grænn kapítalismi í anda haghafakenningarinnar, þar sem fyrirtæki meta aðra þætti inn í stefnu fyrirtækis en hagnaðarsjónarmið, sé mögulegt eða þurfum við alfarið að hverfa frá kapítalíska kerfinu? Rannsóknin sýnir fram á að kapítalismi samtímans er kominn langt frá þeim grundvallarhugmyndum sem hann á rætur í. Einnig er sáralítil munur á haghafa- og hluthafakenningunni í verki þar sem eigendur fyrirtækja þurfa að taka það upp hjá sjálfum sér að setja umhverfis- og sjálfbærnimál á dagskrá. Ef það leiðir ekki með beinum hætti til fjárhagslegs ávinnings, heldur veldur kostnaði, veikir samkeppnisstöðu og dregur úr hagnaði er lítill hvati fyrir fyrirtæki í harðri samkeppni að gera slíkt.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Aron Ingi Valtýsson 1993-
Advisor dc:description.advisor
  • Sævar Ari Finnbogason 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/42530

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Aron Ingi Valtýsson 1993-. Er grundvallarmunur á hefðbundnum kapítalisma sem byggir á hluthafanálgun og kapítalisma sem byggir á haghafanálgun? Er kapítalisminn raunhæf lausn á þeim framtíðaráskorunum sem blasa við?. 2022. https://hdl.handle.net/1946/42530