Back to search

Bifröst University

Eru tengsl milli áfallastreitueinkenna og áfengisnotkunar hjá íslenskum viðbragðsaðilum í neyðarþjónustu?

Abstract

dc:description.abstract

Lögregla, slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn (hér eftir kallaðir viðbragðsaðilar í neyðarþjónustu) hafa, vegna vinnutengdra áfalla, tjáð sig um margvísleg geðheilbrigðisvandamál þar sem alvarlegasta umkvörtunin er áfallastreituröskun (Benedek, Fullerton, og Ursano, 2007). Viðbragðsaðilar eru oftast fyrsta sérhæfða aðstoð sem berst á vettvang alvarlegra slysa og/eða veikinda, jafnvel oft á dag. Markmið rannsóknarinnar er að skoða tíðni áfallastreitueinkenna hjá íslenskum viðbragðsaðilum og tengsl þeirra við áfengisnotkun, bæði tíðni neyslu og magn. Með útsendum spurningalista voru einkenni áfallastreitu og neysla áfengis metin hjá 231 lögreglumönnum og 163 slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum. Helstu niðurstöður voru að 16,7% lögreglumanna uppfylltu viðmiðunarmörk fyrir líklega áfallastreituröskun en áætluð tíðni áfallastreituröskunar hjá almenningi er um það bil 1 til 8% (Kessler, Sonnega, Bromet, Hughes og Nelson, 1995; Lee, Ahn, Jeong, Chae og Choi, 2014). Einkenni lögreglumanna voru marktækt hærri heldur en hjá slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum, en þar uppfylltu 8,2% þeirra viðmiðunarmörk fyrir líklega áfallastreituröskun. Svarhlutfall lögreglu var mun hærra en hjá slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum. Þessar niðurstöður sýna fram á álagið sem viðbragðsaðilar eru undir og undirstrika mikilvægi þess að fagleg inngrip sérfræðinga séu aðgengileg. Þannig er mögulega hægt að draga úr áhrifum alvarlegra áfalla og vinna gegn þróun áfallastreitueinkenna. Erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á að viðbragðsaðilar eigi til að meðhöndla áfallastreitueinkenni með áfengi eða öðrum vímugjöfum því einkenni áfallastreitu eru meðal annars þau eða vera stöðugt á varðbergi. Þar sem áfengi er ekki eins aðgengilegt á Íslandi eins og í sumum þeim löndum sem hafa rannsakað þessi tengsl er fróðlegt að skoða hvort tengsl séu hjá íslenskum viðbragðsaðilum milli áfallastreitu annars vegar og notkunar áfengis hins vegar. Sett er fram eftirfarandi rannsóknarspurning: Eru tengsl milli áfallastreitueinkenna og áfengisnotkunar hjá íslenskum viðbragðsaðilum í neyðarþjónustu? Helstu lykilorð: Áfall, áfallastreituröskun, áfengi, viðbragðsaðilar, lögregla, slökkvilið, sjúkraflutningar, streita.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Stefán Pétursson 1967-
Advisor dc:description.advisor
  • Sigríður Björk Þormar 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/42535

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Stefán Pétursson 1967-. Eru tengsl milli áfallastreitueinkenna og áfengisnotkunar hjá íslenskum viðbragðsaðilum í neyðarþjónustu?. 2022. https://hdl.handle.net/1946/42535