Back to search

Bifröst University

Ferðahegðun Íslendinga á tímum Covid-19

Abstract

dc:description.abstract

Ferðaþjónusta er mikilvæg atvinnugrein og gerir ferðamönnum kleift að ferðast á milli landa og tengir heiminn saman á einn eða annan veg. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvort ferðahegðun Íslendinga breyttist á tímum Covid-19. Miklar takmarkanir voru í gangi sem gerði Íslendingum og erlendum ferðamönnum erfitt fyrir að ferðast á milli landa. Rannsóknin var framkvæmd með megindlegri og eigindlegri rannsóknaraðferð. Megindlegi hlutinn var framkvæmdur með rafrænni spurningakönnun sem var deilt á Facebook síðum rannsakenda, þar fengust 302 svör. Nýttur var viðtalsrammi í eigindlega hlutanum og tekin viðtöl við þrjá einstaklinga innan íslensku ferðaþjónustunnar. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að ferðahegðun Íslendinga breyttist á tímum Covid-19 þó þátttakendur upplifa sig að hafa ekki breytt ferðahegðun sinni. Íslendingar ferðuðust víða um landið og skoðuðu vinsæla ferðamannastaði sem öllu jafnan hefðu verið vel sóttir af erlendum ferðamönnum. Það er nokkuð sem þeir hefðu ekki gert nema því svo fáir erlendir ferðamenn voru hér á landi. Niðurstöður sýna að Íslendingar eru tilbúnir að ferðast aftur erlendis við fyrsta tækifæri og því eru vísbendingar að ferðahegðun Íslendinga sé að komast aftur í sama farið og fyrir Covid-19.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Erna Bergþóra Einarsdóttir 1983-
  • Lilja Rut Víðisdóttir 1985-
Advisor dc:description.advisor
  • Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/42548

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Erna Bergþóra Einarsdóttir 1983-; Lilja Rut Víðisdóttir 1985-. Ferðahegðun Íslendinga á tímum Covid-19. 2022. https://hdl.handle.net/1946/42548