Back to search

Bifröst University

Vextir og vaxtaálag lífeyrissjóða : óverðtryggð sjóðfélagalán

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn var rannsökuð söguleg þróun vaxta og vaxtaálags óverðtryggðra sjóðfélagalána yfir árin 2016─2021 og athugaðir mögulegir áhrifaþættir á þá þróun. Þetta var gert með því að safna sögulegum gögnum frá lífeyrissjóðum um óverðtryggða vexti þeirra og lánareglur. Rannsókninni var skipt í tvo hluta með tilliti til hvenær sjóðurinn hafði heimild til að breyta vöxtum lánanna á lánstímanum. Í öðrum hluta voru lán sem sjóðurinn gat breytt vöxtum hvenær sem var (ÓSB) en í hinum hlutanum voru lán þar sem vextir voru festir til 36 mánaða í upphafi lánstíma (ÓSF). Vextir og vaxtaálag hvoru tveggja, ÓSB og ÓSF lána, voru skoðuð með tilliti til stýrivaxta og sögulegir vextir sjóðanna settir í samhengi við ávöxtunarviðmið lífeyrissjóðanna sem felur í sér 3,5% raunávöxtun á ársgrundvelli. ÓSB lánin voru auk þess skoðuð með tilliti til ávöxtunarkröfu óverðtryggða skuldabréfsins RIKB 31 0124 og ÓSF með tilliti til ávöxtunarkröfu einfalds vaxtarófs óverðtryggða skuldabréfaflokksins RIKB. Helstu niðurstöður voru að vaxtaálag, bæði ÓSB og ÓSF lánanna, hækkaði að jafnaði með lækkun stýrivaxta og viðkomandi ávöxtunarkröfu. Þá virtist vera hægt að merkja greinileg áhrif frá stýrivöxtum og ávöxtunarviðmiðinu á vexti sjóðanna á vissum tímabilum auk mögulegra áhrifa frá vaxtarófinu á ÓSF lán á vissum tímabilum. Vextir hvoru tveggja, ÓSB og ÓSF lánanna, voru lægri en ávöxtunarviðmið lífeyrissjóðanna fyrri hluta ársins 2018 og endaði mismunurinn (í nafnvöxtum) í 4,41% á ÓSB lánum og 3,58% á ÓSF lánum fyrir árið 2021.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ólafur Gunnar Jónsson 1978-
Advisor dc:description.advisor
  • Húni Jóhannesson 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/42551

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ólafur Gunnar Jónsson 1978-. Vextir og vaxtaálag lífeyrissjóða : óverðtryggð sjóðfélagalán. 2022. https://hdl.handle.net/1946/42551