Bifröst University
Skiptir íbúafjöldi máli : er stærðarhagkvæmni fyrir hendi í útgjöldum sveitarfélaga?
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari rannsókn var stærðarhagkvæmni sveitarfélaga á Íslandi rannsökuð. Leitast var eftir að svara rannsóknarspurningunni: Skiptir íbúafjöldi máli – er stærðarhagkvæmni fyrir hendi í útgjöldum sveitarfélaga? Auk þess var leitað svara við eftirfarandi undirspurningu: Ná fjölmennari sveitarfélög frekar markmiðum laga um sjálfbærni, standast þau frekar skulda- og jafnvægisreglur sveitarstjórnarlaga? Megindleg rannsóknaraðferð var notuð með fyrirliggjandi fjárhagsgögnum allra sveitarfélaga á landinu. Margliða aðhvarfslíkan var notað á tólf málaflokka sveitarfélaga þar sem háða breytan var kostnaður á íbúa í hverjum málaflokki og óháða breytan íbúafjöldi. Meðalkostnaður málaflokkanna á íbúa eftir stærðarflokkun var einnig skoðaður auk staðalfrávika til stuðnings við aðhvarfslíkanið. Niðurstöður þessarar rannsóknar bentu til þess að stærðarhagkvæmni væri ekki að finna hjá sveitarfélögum nema að litlu leyti. Greiningin gefur til kynna að íbúafjöldi hafi ekki tölfræðilega marktæk áhrif á kostnað nema í fáum málaflokkum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Péturína Laufey Jakobsdóttir 1980-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Húni Jóhannesson 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/42553