Bifröst University
Hversu sjálfstæður er listamaðurinn gagnvart utanaðkomandi áhrifum, valds, efnahags, stigveldis eða félagslegs samhengis?
Abstract
dc:description.abstractRannsóknin er eigindleg viðtalsrannsókn þar sem tekin voru hálfskipulögð viðtöl við fimm starfandi myndlistarmenn um sjálfstæði þeirra og listumhverfi út frá þeim hugtökum sem Pierre Bourdieu leggur til grundvallar í greiningum sínum um sjálfstæði (e.autonomy) ósjálfstæði/þvingun (e.heteronomy) og stigveldi (e.hierarchy) og svo virði (e.value). Tilgangur þessarar rannsóknar er að leita eftir sjónarmiðum valins hóps listamannana á þessu hugmyndafræðilega „átakasvæði“ autonome/heteronomy – hinni klassísku spurningu sem fylgt hefur listheiminum frá því um miðja 18. öld: hvort listin búi yfir sjálfstæðri hugmyndalegri fagurfræði, hversu sjálfstæður listamaðurinn sé gagnvart utanaðkomandi áhrifum valds, efnahags, stigveldis eða félagslegs samhengis? Hvernig og hvaða utanaðkomandi þættir móta verkefni og störf listamannsins, og er hægt að slíta þessi andstæðu hugtök úr samhengi hvort við annað? Að einhverju leyti er þetta hugmyndin, sem í sinni einföldustu mynd hefur verið kölluð „Listin fyrir listina“ (e. Art for art's sake). Aðferð eigindlegra viðtalsrannsókna var valin og hún byggð á kenningu Pierre Bourdieu um, akur hinar listrænnar framleiðslu, til að skapa umgjörð um rannsóknina og samtölin. Aðeins fimm myndlistarmenn tóku þátt í rannsókninni, sem er ekki stór sneið úr þýði íslenskrar myndlistarsenu og það kann að takmarka sjónarhornið, en allir viðmælendur hafa starfað lengi að myndlist og átt samfelldan og farsælan feril sem listamenn sem gaf á móti færi á að kafa dýpra í reynslu þeirra af glímunni við hugmyndaheiminn. Það er skýr niðurstaða samtalsins að umræðan um sjálfstæða fagurfræði eða myndheim er mjög lifandi meðal þessa hóps myndlistarmanna með jákvæðum formerkjum. Ríkur hluti af starfi þeirra er að endurskoða og meta eigin hugmyndaheim, endurskapa hann og þróa og það er sambland þekkingar og meðvitaðrar umræðu við undirmeðvitund eða umhverfi sitt. Öll leggja þau mikið á sig til að verja sitt rými fyrir utanaðkomandi áhrifum og sú tilhneiging að rjúfa á milli afkomu eða áhrifa viðskipta og fjármagns til að vernda þeirra eigin sjálfsprotna hugmyndaheim er áberandi. Lykilorð: sjálfstæði, ósjálfstæði, hugmyndaheimur, virði, táknrænt auðmagn, listheimur, listakur.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Erling Jóhannesson 1963-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Njörður Sigurjónsson 1974-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/42555