Back to search

Bifröst University

"Verðlaunin eru að finna að maður er að gera gagn" Rannsókn á hvatningu félagsráðgjafa í starfi

Abstract

dc:description.abstract

Eðli vinnu hefur tekið gríðarlegum breytingum á undanförnum áratugum. Hér áður fyrr vann fólk einungis til að eiga í sig og á, en nú til dags gerir fólk mun ríkari kröfur til vinnu. Vellíðan í vinnu getur haft áhrif á almenna vellíðan fólks og því skiptir hönnun starfs og starfsumhverfi miklu máli. Starf og starfsumhverfi getur einnig átt stóran þátt í hvatningu starfsfólks og þar með starfsánægju, frammistöðu og framleiðni. Rannsóknir sýna að ytri hvatning getur leitt af sér skjótar breytingar á frammistöðu, en ef hún á að vara til langs tíma þarf hvatningin að koma innan frá. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða hvað hvetur félagsráðgjafa í starfi. Rýnt verður í hvort þeir séu drifnir áfram af innri eða ytri hvatningu og hvað það er sem hefur áhrif á hvatningu þeirra. Framkvæmd var viðtalsrannsókn sem náði til 12 starfandi félagsráðgjafa. Slík rannsóknaraðferð veitir góða innsýn í reynslu og upplifun viðmælenda og betri skilning á viðfangsefninu. Það sem hvetur félagsráðgjafa er starfið sjálft, verkefnin og að finna að þeir geri gagn. Niðurstöður rannsóknarinnar benda því til þess að félagsráðgjafar séu drifnir áfram af innri hvatningu. Þeir eru mjög meðvitaðir um mikilvægi starfs síns, það hefur mikla þýðingu fyrir þá og gefur þeim mjög mikið. Á móti kemur að starfið er mjög krefjandi og því er mikilvægt að félagsráðgjafar hafi úrræði til að vinna gegn kröfunum. Niðurstöðurnar eru í takt við aðrar rannsóknir og kenningar um innri hvatningu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ásta Katrín Gestsdóttir 1992-
Advisor dc:description.advisor
  • Þóra Þorgeirsdóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/42563

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásta Katrín Gestsdóttir 1992-. "Verðlaunin eru að finna að maður er að gera gagn" Rannsókn á hvatningu félagsráðgjafa í starfi. 2022. https://hdl.handle.net/1946/42563