Back to search

Bifröst University

Skilvirkni auglýsinga : hafa andlit áhrif á skilvirkni auglýsinga á samfélagsmiðlum?

Abstract

dc:description.abstract

Auglýsingar skipta miklu máli fyrir fyrirtæki en þær eru einn sýnilegasti hluti markaðsfræðinnar. Neytendur sjá mikið magn af auglýsingum og skiptir því máli að hafa þær sem skilvirkastar til að byggja upp ímynd og koma skilaboðum áleiðis. Í þessari rannsókn verður skoðað hvort andlit hafi áhrif á skilvirkni auglýsinga á samfélagsmiðlum en ekki fundust íslenskar rannsóknir um þetta viðfangsefni og var því ákveðið að skoða það. Framkvæmdar voru tvennskonar rannsóknir annars vegar var framkvæmd megindleg rannsókn og hins vegar voru sett A/B prófanir á Facebook. Megindlega rannsóknin var sett fram í formi spurningarkönnunar og skoðaði hvort auglýsing með andliti eða án andlits höfðaði frekar til þátttakenda. A/B prófunin var unnin í samstarfi við A4 og Ormsson en settar voru af stað fjórar herferðir þar sem auglýsing A innihélt andlit en auglýsing B var án andlits. Helstu niðurstöður í megindlegu rannsókninni voru að andlit hafi ekki áhrif á skilvirkni auglýsinga þar sem 7 auglýsingar án andlits höfðuðu frekar til þátttakenda en aðeins 6 auglýsingar með andliti höfðuðu frekar til þátttakenda. Niðurstöður úr A/B prófuninni voru jafnar en tvær auglýsingar frá A4 sem voru með hærra smellihlutfall voru án andlits en tvær auglýsingar frá Ormsson sem voru með hærra smellihlutfall voru með andliti.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jana Rut Magnúsdóttir 1991-
Advisor dc:description.advisor
  • Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/42568

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jana Rut Magnúsdóttir 1991-. Skilvirkni auglýsinga : hafa andlit áhrif á skilvirkni auglýsinga á samfélagsmiðlum?. 2022. https://hdl.handle.net/1946/42568