Back to search

Bifröst University

Stafrænar umbreytingar : millistjórnendur sem kyndilberar stafrænna umbreytinga

Abstract

dc:description.abstract

Margar íslenskar skipulagsheildir ganga nú í gegnum viðamiklar breytingar á starfsemi sinni, breytingar sem ganga undir nafninu stafrænar umbreytingar. Breytingarnar fela meðal annars í sér innleiðingu tækninýjunga, upptöku nýrra verkferla og breyttar áherslur í rekstri. Talið er að umbreytingin muni hafa töluverð áhrif á starfsfólk og störf þeirra. Einnig er talið að leiðtogar, þar með talið millistjórnendur, þurfi að aðlaga sig að kviku umhverfi og nýjum áskorunum sem fylgja stafrænum umbreytingum. Tilgangur þessarar rannsóknar er að fá innsýn í hlutverk millistjórnenda og þær áskoranir sem þeir standa frammi fyrir í stafrænum umbreytingum, ásamt því að kanna hvaða breytingar kunna að verða á störfum starfsfólks. Stuðst er við eigindlega aðferð og tekin viðtöl við átta millistjórnendur sem starfa hjá einkareknum og opinerum skipulagsheildum. Þemagreiningu er beitt á gögn úr viðtölunum til að fá heildstæða mynd af upplifun viðmælenda, finna mynstur og tengsl milli þema. Helstu niðurstöður benda til þess að lykilhlutverk millistjórnenda í stafrænum umbreytingum sé að tryggja upplýsingaflæði, valdefla starfsfólk og vinna með hugarfar þeirra. Helstu áskoranir millistjórnenda felast í því að sannfæra starfsfólk sitt um virði breytinganna, tryggja hæfnikröfur starfsfólks ásamt því að mæta breyttum væntingum til ráðningasambandsins. Einnig kemur fram að millistjórnendur sjá fyrir sér breytingar á störfum sem fela meðal annars í sér að sum störf verði úreld og störfin sem eftir verða krefjist meiri sérfræðiþekkingar. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa vísbendingar um að millistjórnendur standi frammi fyrir krefjandi áskorunum og séu á lærdómsríkri vegferð sem kyndilberar stafrænna umbreytinga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Margrét Pétursdóttir 1983-
Advisor dc:description.advisor
  • Arney Einarsdóttir 1962-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/42569

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Margrét Pétursdóttir 1983-. Stafrænar umbreytingar : millistjórnendur sem kyndilberar stafrænna umbreytinga. 2022. https://hdl.handle.net/1946/42569