Back to search

Bifröst University

Er til staðar klasi í ferðaþjónustunni við Mývatn? Stöðumat og samanburður milli áranna 2012 og 2021

Abstract

dc:description.abstract

Komið hefur fram í rannsóknum að klasasamstarf fyrirtækja skilar oft betri árangri, meiri arðbærni, öflugri nýsköpun og framþróun innan greinarinnar ásamt því að fyrirtækin sína oft árangursríkari útrás á alþjóðavettvangi. Höfundur hafði áhuga á að rannsaka hvernig þessum hlutum væri háttað í íslenska ferðaþjónustugeiranum og Mývatnssvæðið varð fyrir valinu við afmörkun á staðbundnu svæði til rannsóknar en þar virtist vera kominn vísir að klasasamstarfi. Höfundur gerði tvær megindlegar samanburðarrannsóknir árið 2012 og 2021 staðlaðar skv. Likert kvarða meðal ferðaþjónustuaðila við Mývatn ásamt því að árið 2012 þá gerði hann eigindlega rannsókn, tók djúpviðtöl við fimm aðila í ferðaþjónustu þar. Kenningar Porters um klasa og samkeppnishæfni voru aðallega notaðar við gerð rannsóknanna og túlkunar á niðurstöðum. Nokkur meginsvið klasasamstarfs skv. kenningum Porters voru þar höfð til viðmiðunar, samvinna, samkeppni, upplýsingaflæði, nýliðun og nýsköpun. Niðurstöðurnar sem komu út úr rannsóknunum voru að þó að samvinna sé góð og hafi vaxið á tímabilinu þá vantar upp á of marga árangursþætti til að um eiginlegan klasa sé að ræða. Það þarf betri stýringu og heildaryfirsýn og að efla klasatengingar á svæðinu t.d. hugmyndavinnslu, samvinnu, rannsóknir og fræðslu. Aðkomu ríkis og sveitafélags að uppbyggingu ferðamannastaða og ferðaþjónustunnar á svæðinu er einnig verulega ábótavant og fjárskortur virðist standa framkvæmdum fyrir frekari fyrir þrifum. Í rannsókninni kemur fram eindrægur vilji hjá ferðaþjónustuaðilum að efla samstarf sín á milli og flæði þekkingar og reynslu og stuðla að uppbyggingu heilsteyptara ferðaþjónustusamfélags í átt til klasasamstarfs.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Soffía Sveinbjörg Jónasdóttir 1972-
Advisor dc:description.advisor
  • Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/42575

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Soffía Sveinbjörg Jónasdóttir 1972-. Er til staðar klasi í ferðaþjónustunni við Mývatn? Stöðumat og samanburður milli áranna 2012 og 2021. 2022. https://hdl.handle.net/1946/42575