Back to search

Bifröst University

Áfallastjórnun og mannauðsstjórnun á tímum COVID-19

Abstract

dc:description.abstract

Áföll geta verið af ýmsum toga, allt frá náttúruhamförum, stríði, efnahagshruni, heilsufaraldri, hryðjuverkum, iðnbyltingu til tækniárása, svo einhver dæmi séu nefnd. Listi mögulegra áfalla er langur og fer aðeins stækkandi. Ein afleiðing COVID-19 áfallsins er sú að fyrirtæki um allan heim hafa þurft að aðlaga sig hratt að nýjum verkferlum og viðskiptaumhverfi þar sem þau hafa sætt hömlum eða takmörkunum vegna sóttvarnaraðgerða ríkisstjórna. Þessar aðgerðir þýddu því fyrir sum fyrirtæki að þeim var gert að loka starfsemi sinni tímabundið á meðan önnur urðu að finna leiðir til að láta reksturinn ganga með takmarkaðan starfsmannafjölda á starfsstöðvum. Markmið með rannsókninni er að skoða tengsl á milli ákvarðanatöku/viðbragða og leiðtogastíls í áfalli innan skipulagsheildar. Leitast er eftir að skoða hvort menning samfélagsins hafi áhrif á ákvarðanatöku leiðtoga. Notast er við blandaða rannsóknaraðferð þar sem gagna er aflað bæði með megindlegum og eigindlegum aðferðum í formi viðtala og spurningalista. Rannsóknarsniðið er tilvikarannsókn þar sem notast er við hefðbundið tilvik þar sem markmiðið er að fanga aðstæður og skilyrði sem leiddu til ákvarðana og viðbragaða í áfallinu. Niðurstöðurnar gefa til kynna að menning samfélags og leiðtogastíll hafi áhrif á ákvarðanir og viðbrögð í áfalli. Einnig gefa niðurstöður vísbendingu um að til staðar séu tengsl á milli menningar, leiðtogastíls og ákvarðana í áfalli. Þá benda niðurstöður til að vinnusálfræði skipti töluverðu máli þegar fyrirtæki lendir í áfalli. En ekki er nóg að fyrirtæki hlúi eingöngu að starfsfólki heldur þarf einnig að hlúa að þeim sem hópi og teymi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ásta Særós Haraldsdóttir 1984-
Advisor dc:description.advisor
  • Ásthildur Elva Bernharðsdóttir 1960-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/43454

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásta Særós Haraldsdóttir 1984-. Áfallastjórnun og mannauðsstjórnun á tímum COVID-19. 2023. https://hdl.handle.net/1946/43454