Back to search

Bifröst University

Ákvarðanir stjórnvalda um breytt vaxtaumhverfi: Hafði pólitísk skammsýni áhrif við loforð um vaxtalækkanir í Lífskjarasamningnum?

Abstract

dc:description.abstract

Þegar samið er um kjaramál og lífskjör launafólks í landinu er sjaldnast hægt að beita svarthvítri hugsun. Horfa þarf til óteljandi þátta og taka tillit til allra hagsmunaaðila. Undanfarin misseri hefur þeirri nálgun verið beitt að auk samningsaðila gangi stjórnvöld að borðinu og leggi sitt að mörkum til þess að greiða fyrir samningum. Skiptar skoðanir eru á því hvort þar sé um að ræða skynsamlega nálgun og hvort stjórnvöld gefi loforð sem ekki er hægt að efna með öllu. Í því sambandi má spyrja sig að því hvort um sé að ræða skort á langtímahugsun, eða pólitíska skammsýni (e. political short-termism). Rannsóknarspurning ritgerðarinnar er: „Hafði pólitísk skammsýni áhrif við loforð um vaxtalækkanir í lífskjarasamningnum?“ Markmið rannsóknarinnar er að dýpka skilning á hugtakinu um pólitíska skammsýni og skoða hvort tengsl séu á milli þess og afdrifaríkra ákvarðana stjórnvalda. Þá verða önnur tengd hugtök og kenningar skoðuð og unnið út frá þeim. Höfundur leggur einnig fram tilgátu um að ákvarðanir stjórnvalda um breytt vaxtaumhverfi og loforð um vaxtalækkanir hafi mögulega verið hugsuð til of skamms tíma. Annars vegar er framkvæmd eigindleg rannsókn þar sem tekin eru hálf-opin viðtöl við fjóra sérfræðinga sem eru vel kunnugir efnahagsumhverfi, kjaramálum og stjórnmálaumhverfi. Hinsvegar eru teknar saman fyrirliggjandi heimildir; bæði fræðilegar heimildir sem varða stefnumótun í pólitík og lykilhugtök rannsóknarinnar, ásamt heimildum um gerð lífskjarasamningsins, vaxtaumhverfi og tengd málefni. Þessi tvíþætta nálgun leiddi í ljós vísbendingar um að stjórnvöld hafi hingað til ekki haft langtímasjónarmið nægilega mikið að leiðarljósi þegar kemur að stefnumótun og ákvarðanatöku. Einnig má efast um umboð ríkisstjórnarinnar til að lofa vaxtalækkunum í ljósi þess að Seðlabanki Íslands er sjálfstætt stjórnvald. Auk þess virðist sem svo að stjórnvöld hafi ekki, með fullnægjandi hætti, búið þannig um hnútana að loforð myndu ganga upp.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir 1988-
Advisor dc:description.advisor
  • Eiríkur Bergmann Einarsson 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/43458

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir 1988-. Ákvarðanir stjórnvalda um breytt vaxtaumhverfi: Hafði pólitísk skammsýni áhrif við loforð um vaxtalækkanir í Lífskjarasamningnum?. 2023. https://hdl.handle.net/1946/43458